18.12.1944
Sameinað þing: 78. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í B-deild Alþingistíðinda. (656)
143. mál, fjárlög 1945
Páll Hermannsson:
Herra forseti. — Ég flyt hér á þskj. 740 ásamt fimm öðrum hv. þm. brtt. undir XXIII. lið. Þessi till. er um það, að Gunnar skáld Gunnarsson skuli njóta 6000 króna heiðurslauna að viðbættri verðlagsuppbót af því fé, sem nú er í fjárlfrv. ætlað til skálda, rithöfunda og listamanna. Þó að hér sé um ákveðna upphæð að ræða, þá er þetta ekki till. um hækkun á útgjöldum ríkissjóðs, heldur sérstaka ráðstöfun á fé, sem þegar stendur í fjárlfrv. — Mér þykir rétt að gera nokkra grein fyrir þessari till. frá mínu sjónarmiði. Ég vil þó taka skýrt fram strax, að það er alls ekki víst, að allir hv. meðflm. mínir mundu færa fyrir þessari till. sömu rök og ég geri og líka sennilegt, að þeir mundu tilnefna sitthvað, sem ég sleppi. Ég tala því um till. algerlega á eigin ábyrgð og frá eigin sjónarmiði.
Gunnar Gunnarsson skáld á Skriðuklaustri er landskunnur maður, en ég vil þó leyfa mér að rifja upp örfá atriði úr ævi hans. Er þá fyrst að geta þess, að innan við tvítugt fluttist hann burt úr föðurlandi sínu. Dvaldist hann erlendis samfleytt full 30 ár, því að fimmtugur flyzt hann heim aftur. Ég ætla, að hér heima hafi hann ekki notið neinnar fræðslu, svo að teljandi sé, nema það, sem faðir hans eða þá umferðakennari hefur frætt hann í heimahúsum. Má vera, að hann hafi verið eitthvað lítils háttar í barnaskóla eða því líkt í Vopnafjarðarkauptúni. Má því sjá, að íslenzka ríkið hefur ekki kostað miklu til frama Gunnars eða menntunar. Fyrst eftir að hann kom til annarra landa, barðist hann harðri baráttu fyrir lífi sínu og þroska, og geta þeir, sem lesa sumar sögur hans, fræðzt mjög ýtarlega um það. Þó fór það svo,. að Gunnar aflaði sér á skömmum tíma góðrar menntunar; ég býst t.d. við, að hann sé tungumálamaður og sögumaður í bezta lagi. Þegar fram í sótti, fór að bera á, að þessi maður var skáld, og þarf ekki að orðlengja það, að það endaði með því, að hann hlaut viðurkenningu erlendis og að ég ætla, líka hér heima — sem merkilegur og stórvirkur rithöfundur. Var að vísu fundið að því hér heima framan af, að Gunnar dveldist í fjarlægu landi og ritaði á erlendu máli, og eftir að Gunnar fór að verða frægur, því að það varð hann, þá var talað um þetta með nokkurri afbrýði af sumum Íslendingum, vegna þess að þeir litu svo á, að úti í heimi væri þessi frægi landi þeirra álitinn vera danskur maður, vegna þess að hann bjó í Danmörku og ritaði á danska tungu.
Ég ætla, að það sé ekki ofmælt, að um það bil, sem Gunnar Gunnarsson fluttist hingað heim, hafi hann verið einn af þekktustu og mikilvirkustu rithöfundum Íslendinga fyrr og síðar. Ég tel mig vita það með vissu, að um öll Norðurlönd, í Þýzkalandi, Englandi og jafnvel í Ameríku hafi Gunnar verið einna þekktastur allra núlifandi Íslendinga.
Ég get ekki stært mig af að hafa átt viðræður við erlenda menn eða dvalizt með öðrum þjóðum. Þó vildi svo til, að 1938 kom ég til Norðurlandanna, Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. Þetta var einmitt sumarið áður en Gunnar Gunnarsson fluttist hingað heim, því að til Íslands kom hann 1939.
Ég talaði þar við menn, eftir því sem málakunnátta mín leyfði, og tvennt var ég aðallega spurður um. Annað var það, hvort að væri satt, að hægt væri að hita upp höfuðborg Íslands með jarðhita, en hitt, hvort það væri rétt, að Gunnar Gunnarsson væri að flytjast hingað heim til Íslands. Ég nefni þetta af því, að það sýnir vel, hvern gaum fólk í þessum löndum gaf Gunnari Gunnarssyni.
Fimmtugur að aldri fluttist Gunnar Gunnarsson heim. Ég veit ekkert um, hvað hefur sérstaklega valdið heimkomu hans, en þætti ekki ólíklegt, að það hafi m.a. og máske fyrst og fremst verið það, að hann hafi viljað sjálfur sýna mönnum svo sem verða mátti, hverrar þjóðar maður hann væri. Hann fluttist einmitt þangað, sem vagga hans hafði staðið. Hann fæddist á Valþjófsstað, en fluttist að Skriðuklaustri, sem er næsti bær. Ég tel mig mega fullyrða, að þegar Gunnar fluttist heim, hafi íslenzka ríkið engu kostað til hans öðru en ef það hefur fleygt nokkrum krónum í farkennara, sem sagði honum til, þegar hann var barn.
Nú er Gunnar stórbóndi, eftir því sem gerist á Íslandi. Hann er ræktunarmaður og byggingamaður austur í Fljótsdal. Hann býr þar búi sínu og ræktar jörð sína og hefur reist híbýli, sem ég held, að öllum, er séð hafa, þyki merkileg og samboðin merkilegum manni. Um fjárhagsástæður hans veit ég ekki neitt annað en það, að ég veit, að bæði fé, sem hann átti erlendis, og þó kannske einkum tekjuvonir, sem hann hafði þar, hafa brugðizt honum verulega, síðan stríðið skall á.
Mér virðist, þegar Gunnar Gunnarsson flyzt heim, að ekki hafi verið nógu hátt ris á viðtökum á manni, sem hafði unnið landi sínu og sjálfum sér mikla sæmd og aukið þekkingu erlendra manna á landi og þjóð og á allan hátt gefizt svo sem bezt varð á kosið. Mér hefði t.d. fundizt, að það hefði ekki verið nema réttlátt, að ríkið hefði gefið honum moldina, sem hann ætlaði að umbæta eftir heimkomuna. En úr því varð þó ekki. Þegar Gunnar Gunnarsson kom fimmtugur að aldri hingað heim, hafði hann ekki þegið neina hjálp, endurgjald né frama frá íslenzka ríkinu. Svo merkilegt sem erlendum mönnum hefur fundizt starf Gunnars Gunnarssonar, var þó lítil rausn eða fögnuður í móttökunum, þá er þessi einn hinn viðkunnasti sonur þjóðarinnar fluttist heim alkominn eftir svo langa og athyglisverða útivist. Enda hefur verið raunalegur blær yfir viðskiptum Gunnars Gunnarssonar og íslenzka ríkisins yfirleitt, síðan hann kom heim. Ég ásaka engan sérstaklega um það, sem orðið er, en ég fullyrði, að þetta á og þarf að breytast. Ég tel, að við Íslendingar höfum ekki efni á því að láta líta svo út sem við metum lítils og látum okkur fátt um finnast íslenzka menn, er svo víðkunnir hafa orðið erlendis og mikils metnir. Ég finn, að það er sanngjarnt og skylt, að á þessu verði annar blær framvegis. Ég ætla líka, að það séu viða menn, sem finna sáran til þess, hvernig þessi viðskipti hafa verið. Má vera, að það sé einkum í þeim landsfjórðungi, þar sem Gunnar er þekktastur, og er það góður vitnisburður um manninn. Ég veit t.d., að aðalfundir sýslunefnda beggja Múlasýslnanna hafa samþ. áskoranir um það, að ríkið veitti Gunnari Gunnarssyni sérstök heiðurslaun. Og aðalfundur Sambands íslenzkra samvinnufélaga, sá síðasti, sem haldinn hefur verið, samþ. sams konar till., og þykir mér rétt, með leyfi hæstv. forseta, að lesa þá till. hér. Hún hljóðar svo:
„Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga, haldinn á Akureyri dagana 22.–24. júní 1944, lýsir yfir því, að það er eindregin ósk og vilji fundarins, að öndvegisskáld þjóðarinnar, Gunnar Gunnarsson, bóndi á Skriðuklaustri, njóti heiðurslauna úr ríkissjóði. Fyrir því skorar fundurinn á Alþingi og ríkisstjórn að tryggja nú tafarlaust Gunnari Gunnarssyni sérstök heiðurslaun úr ríkissjóði, er vari ævilangt. Telur fundurinn, að nú, á þessum merkilegustu tímamótum í sögu þjóðarinnar, sé ákjósanlegur tími til slíkrar ákvörðunar, fyrst hún er ótekin enn.“
Till. þessi var samþ. á fundinum í einu hljóði. Má af þessu marka, að víða um land, bæði í sveitum og bæjum, er fjöldi manna, sem álítur, að ríkið eigi að búa að Gunnari Gunnarssyni hér eftir betur en orðið hefur fram að þessu.
Ég ætla ekki að fara hér að setja upp ræður um skáldrit Gunnars Gunnarssonar. Ég er sennilegast enginn maður til þess, og þess er ekki heldur þörf. Ég veit, að allir þeir, sem þekkja þau vel, fallast á, að Gunnar sé hvort tveggja í senn, mikilvirkur og hollur rithöfundur og mikill listamaður.
Ég skal geta þess, að þessi brtt. er aðeins miðuð við árið 1945. Þó er á það að líta, að á árinu 1944 nýtur Gunnar Gunnarsson engra skáldalauna neins staðar að. Er það til athugunar fyrir hæstv. ríkisstj., hvort hún sæi ástæðu til þess að bæta úr því. Ég skal líka geta þess, að þó að við, sem flytjum þessa brtt., setjum hana nú þarna og leggjum til, að fjárframlagið verði tekið af upphæð, sem ætluð er skáldum, rithöfundum og listamönnum, ætlumst við ekki til þess, að það verði svo eftirleiðis. Við teljum, að framvegis beri að veita Gunnari Gunnarssyni sérstök heiðurslaun, er vari ævilangt og standi á þeim stað í fjárl., er bezt telst til þess fallinn.
Ég vil svo að síðustu geta þess, að eftir því sem ég hef virt fyrir mér úthlutun fjár til skálda og listamanna undanfarið, hef ég sannfærzt um það, að sú er hin rétta lausn þeirra mála, að Alþ. ákveði sjálft úrvalsmönnum laun, og sé ætlazt til, að þau haldist ævilangt, en einhvers konar nefnd úthluti til fjöldans. Þætti mér fara vel á því, að Gunnar Gunnarsson yrði fyrsti maðurinn, sem á þennan hátt væri heiðraður af Alþ.