18.12.1944
Sameinað þing: 78. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (658)

143. mál, fjárlög 1945

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. — Enda þótt ýmis ummæli hafi fallið við þessar umr., sem ástæða væri að svara af hendi ríkisstj., þá ætla ég að leiða það hjá mér, þar sem ég þykist vita, að hæstv. fjmrh. muni gera það. Ég ætla þess vegna aðeins að fara örfáum orðum um málið og víkja að þeim tveim brtt., sem ég flyt ásamt öðrum þm.

Ég flyt brtt. á þskj. 740,XXVII, með formönnum allra hinna þingflokkanna um að auka styrkinn til Kvenréttindafélags Íslands úr 2000 kr. upp í 10000 kr. Forstöðukonur félagsins töluðu fyrst um þetta við ríkisstj. og síðan við formenn þingflokkanna. Þær skýrðu frá því, að þær hefðu í hyggju að auka starfsemi sína, og sýndu fram á, að þeim væri í því skyni nauðsynlegt að fá aukinn styrk frá ríkinu. Ég hygg, að samanborið við margt annað, sem greitt er úr ríkissjóði, sé mjög réttmætt að verða við þessari ósk. Ég held ég fari rétt með það, að ríkisstj. hafi verið á einu máli um, að hún fyrir sitt leyti mundi verða við þessari ósk, og einnig með nöfn flm. og það, að formenn þingflokkanna hafi verið á einu máli. Ég tel því ástæðulaust að fara lengra út í það og vænti þess, að hv. þm. greiði atkv. með till.

Þá hef ég leyft mér að flytja á þskj. 743 allstóra útgjaldatill. ásamt formönnum annarra flokka, sem sæti eiga á Alþ. Ég tel réttast að segja eins og er, að við höfum sjálfsagt allir rætt þetta nokkuð við þingbræður okkar, og vænti ég þess, að um þetta megi verða samkomulag og það sé að öllu leyti viðeigandi um slíka till. og hér er fram borin, að hún nái siðan einróma samþykki Alþingis.

Mér finnst af öllum ástæðum eðlilegt að rökstyðja ekki sérstaklega þessa till., þar sem hún hefur verið rædd og öllum þm. er kunnugt, hvers vegna hún er borin fram. Mér finnst ekki smekklegt að vera með rökræður um það, Sem sagt: Okkur, sem að þessari till. stöndum, þætti vænt um, ef hún fengi einróma samþykki.

Ég mun ekki að öðru leyti gera aðrar till. að umræðuefni.