18.12.1944
Sameinað þing: 78. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (673)

143. mál, fjárlög 1945

Bjarni Ásgeirsson:

Herra forseti. — Ég á hér. brtt., sem ég leyfi mér að lýsa hér með nokkrum orðum. Fyrst er það þskj. 743, XIL, þar sem farið er fram á, að teknar verði inn á fjárl. greiðslur, sem lögboðnar eru samkv. l. um landnám ríkisins, nr. 58 1941, 750 þús. kr. En í þeim l. segir svo, að ríkið skuli leggja fram til þeirra mála a.m.k. 250 þús. kr. á ári. Nú hafa öll þessi ár liðið frá 1941, án þess að nokkrar greiðslur hafi farið fram. Það má segja, að þetta sé athugaleysi af Alþ. að hafa ekki komið þessu inn á fjárl. En sumir líta svo á, að þegar búið sé að ákveða með l. greiðslur, þá sé það ríkisstj. á hverjum tíma að sjá um, að þeim l. sé framfylgt og slíkar greiðslur inntar af hendi. En því miður hefur þetta ekki verið gert og ekki heldur sett á landsreikninginn, sem þó hefði mátt. Ég tel, að við svo búið megi ekki standa. Mér er sagt, að brtt. hafi verið borin fram í fjvn. um þetta, en ekki fengizt samþ. Ég vil því til áréttingar þessu máli bera fram brtt. um þetta í hæstv Alþ., því að það nær engri átt að ákveða greiðslur með l. og trassa svo að framfylgja þeim l. með því að láta undir höfuð leggjast að greiða það, sem greiða ber. Það þýðir ekki að stinga þannig höfðinu í sandinn. Það má segja, þótt ég skuli ekki fullyrða það, að þessi upphæð sé þegar orðin ein millj. kr., ef miðað er við það, að með árinu 1945 séu fjögurra ára greiðslur fallnar í gjalddaga. En ég vil ekki taka upp nema þriggja ára greiðslur. Það ætti að nægja til þess að sýna hæstv. Alþ. og ríkisstj., hvernig komið er í þessu máli.

Næsta brtt. er XIII. Það er styrkur til Sigbjörns Ármanns til vatnsmiðlunar úr Langavatni í Langá og Gljúfurá í Mýrasýslu, helmingur kostnaðar, 12 þús. kr. Þetta eru mjög góðar laxveiðiár, en þegar þurrkar ganga á sumrin, vilja þær verða vatnslitlar, sérstaklega Gljúfurá. Báðar renna þær úr vatninu. Nú hagar svo til, að mjög auðvelt er að gera vatnsmiðlun úr Langavatni, svo að nægilegt vatnsmagn verði allt sumarið, þó að þurrkar gangi. Báðar árnar gætu því mjög mikið bætt veiðihorfurnar frá því, sem nú er. Sigbjörn Ármann, sem er mjög mikill elju- og áhugamaður um þessi mál, hefur lofað að taka að sér að vinna að þessari vatnsmiðlun og látið fara fram einhverjar mælingar og ýmsan annan undirbúning. Hann hefur einnig séð um vegarlagningu meira en miðja vega að Langavatni. Meiningin er, að þessar greiðslur renni að nokkru til vegarlagningarinnar. — Veiðimálanefnd er mjög meðmælt, að þessar framkvæmdir gætu komizt á, og hefur gefið beztu meðmæli sín. Gert er ráð fyrir eftir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, að kostnaðurinn yrði 50 þús. kr. Hér er farið fram á, að hið opinbera létti undir með framkvæmdum og greiði helming kostnaðar við verkið, og er upphæðinni skipt á tvö ár.

Þá er á sama þskj., XVIII. lið, till. um það, að ríkisstj. verji 25 þús. kr. úr ríkissjóði í byggingarstyrk til Ásgeirs Bjarnþórssonar listmálara. Árið 1943 var samþ. heimild til handa ríkisstj. að greiða 60 þús. kr. til nokkurra listmálara í byggingarstyrk, svo að þeir gætu komið upp málverkavinnustofu fyrir sig. Þessari upphæð var skipt milli nokkurra málara. Ásgeir var einn meðal þeirra. En hann hefur ekki enn getað hirt sinn hluta, 15 þús. kr. Ég hef áætlað hann nokkru hærri nú, og hefur ríkisstj. þá í hendi sinni, hvort hún greiðir 15–25 þús. kr.

Þá eru á þskj. 746 tvær smá brtt. Önnur er ekki -útgjaldatill., hún er um það, að Páli Pálssyni verði veittur 6000 kr. framhaldsstyrkur til náms í búfjársjúkdómafræði af því , fé, sem menntamálaráð hefur til úthlutunar. Ástæðan til þess, að ég ber fram þessa till., var framsöguræða hv. frsm. fjvn. (JJós). Mér skildist á honum, að sú upphæð, sem hann nefndi, 15000 kr., væri ætlazt til, að skiptist jafnt á milli fimm manna. Ég sá þá í hendi mér, að með því móti mundi Páll Pálsson, þessi mjög efnilegi námsmaður, ekki fást til þess að leggja niður starf sitt í Danmörku, en það er mjög vel launað og þægilegt, og taka upp erfitt og dýrt nám á eigin kostnað ofan á langt og kostnaðarsamt nám hingað til. Páll hefur tekið framúrskarandi góð próf og er hið mesta vísindamannsefni. Og ef ríkið færi fram á það við hann, að hann stundaði þetta framhaldsnám og starfaði svo á Íslandi, mundi hann gera það. Það er hverju orði sannara, að fyrir íslenzkan landbúnað er fátt nauðsynlegra, eins og nú standa sakir, en að fá verulega vel lærðan búfjársjúkdómafræðing til þess að standa fyrir lækningatilraunum, sem fara fram nú. Og ef komið verður upp fullkominni tilraunastöð á Keldum í Mosfellssveit, eins og miklar og góðar vonir standa nú til, að ólöstuðum þeim mannalæknum, sem við þessi fræði hafa fengizt, þá er það skoðun fróðra manna, að ákaflega brýn þörf sé, að þar séu fyrir menn með vísindalega dýralæknisþekkingu. Og þar sem svo hagar til, að við Íslendingar eigum mjög efnilegan mann á þessu sviði, þá finnst mér sjálfsagt, að hann fái styrk til að standa straum af því námi, sem hér um ræðir. Mér virðist, eftir ræðu hv. frsm. fjvn. að dæma, að það fé, sem ætlazt er til, að skipt sé milli einstakra námsmanna, sé alls ekki fullkomlega bundið. Menntamálaráð hefur því að vísu í hendi sinni að veita þann styrk, sem álitinn er nauðsynlegur til þessa. En þrátt fyrir það tel ég, að Alþ. beri að benda á þá upphæð, sem það vill leggja til þessa máls. Það er engin vissa fyrir því, að menntamálaráð hafi betri skilning á þessu máli en Alþ. sjálft.

Loks er það brtt. við 18. gr. Það er til Þorleifs Erlendssonar kennara. Hann er orðinn aldraður og hefur um 40 ára skeið verið barnakennari viða um landið á þeim stöðum, sem erfiðast hefur verið að fá menn til kennslustarfa vegna strjálbýlis. Hann hefur lagt mikið á sig, og mér finnst alveg sjálfsagt, að hæstv. Alþ. sjái það við hann með því að veita honum nokkur eftirlaun fyrir mikið og gott starf. Það má segja, að það sé leiðin, að hann fái ellistyrk, en sjálfur kýs hann helzt þessa leið, ef hún reynist fær. Ég hef borið fram þessa till. áður og vænti þess, að hún fái nú betri undirtektir en í fyrra skiptið.