19.12.1944
Sameinað þing: 79. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (691)
143. mál, fjárlög 1945
Forsrh. (Ólafur Thors):
Enda þótt ég telji fyrir mitt leyti, að sú hætta af hernaðarástæðum, sem talin var liggja til grundvallar till., sé liðin frá, þótt það sé ekki á neins manns færi að segja um það fyrir fram, þá greiði ég atkv. að þessu sinni frá því sjónarmiði. En ég vil taka það fram, að ég ætlast ekki til þess, að þessi atkvgr. skapi fordæmi til styrktar sumardvöl barna úr Reykjavík eða öðrum kaupstöðum.
Brtt. 725,25 samþ. með 29:4 atkv.
— 740,XXVII samþ. með 26:19 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu
já: GÍG, GTh, HG, HermJ, KA, LJóh, LJós, ÓTh, PHerm, PÞ, PM, SigfS, SG, ÁS, SÞ, StJSt, StgrA, ÞG, ÁkJ, ÁÁ, BG, BrB, EOl, EmJ, EystJ, FJ.
nei: GJ, HelgJ, IngJ, JPálm, JS, JJ, JörB, MJ, PZ, PO, SEH, SK, SkG, SvbH, ÞÞ, BSt, BÁ, BBen, GÞ.
JakM, JJós, SB, EE, GSv greiddu ekki atkv.
2 þm. (GG, IngP) fjarstaddir.
Óskað var eftir, að fjvn. skýrði frá, hvernig skilja bæri framkomu brtt. 731,2.