19.12.1944
Sameinað þing: 79. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (697)

143. mál, fjárlög 1945

Páll Zóphóníasson:

Þar sem þau fjárl., sem hér liggja fyrir og eru undir atkv., eru ekki nema hallafjárl. og eftir á að koma frá ríkisstj. viðbót og þar með tekjuauki, þá geri ég ráð fyrir, að ríkisstj., sem áhuga hefur á nýbyggingu, sjái fyrir tekjuauka, og segi ég já.