19.12.1944
Sameinað þing: 79. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í B-deild Alþingistíðinda. (706)
143. mál, fjárlög 1945
Ingólfur Jónsson:
Þar sem ég tel ekki rétt að byggja skóla í Skálholti, en till. miðast við þann stað, og ég vona, að hv. Alþ. skipti um skoðun frá því, sem nú er, í þessu máli og það sjái sóma sinn beztan í því að bæta fyrir þau afglöp, sem nýlega voru gerð í þessu máli, og Alþ. læri í náinni framtíð að meta Sámsstaði í Fljótshlíð fyrir bændaskóla, þá segi ég nei við þessari till.