21.11.1944
Efri deild: 72. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í B-deild Alþingistíðinda. (71)
183. mál, nýbyggingarráð
Gísli Jónsson:
Ég skal ekki teygja þessar umr. lengur, en get ekki látið h já, líða að mótmæla fullyrðingum hv. þm. S.-Þ. Ég geri ráð fyrir, að hann segi satt í þessum umr. og fari í engu út af þeirri línu. Hann hélt því fram, að við hefðum aldrei verið samkeppnisfærir við Norðmenn, en ég vil benda á, að einmitt á árunum 1933 til 1940 var tekin upp nokkurs konar nýsköpun, til þess að hægt væri að keppa við Norðmenn. Tókst það svo vel, þótt við þyrftum að greiða sjómönnum okkar hærri laun en Norðmenn gera og skapa þeim betri lífskjör, að nú eiga Íslendingar betri skip en Norðmenn áttu og greiða þess vegna betri laun.
Eitt af þeim atriðum, sem farið hefur verið inn á, er að kaupa betri atvinnutæki en við höfum haft áður. Í öðru lagi er baráttan við það skattabrjálæði Framsfl., sem á þeim tíma lagði þau fyrirtæki að velli og hirti allt, bæði stofnfé og afrakstur. — Hv. þm. talaði einnig um blessun samvinnuútgerðarinnar á þeim tímum. Ég vil leyfa mér að benda honum á, þar sem hann sjálfur situr í bankaráði og sat þá einnig, að enginn banki vildi koma nálægt að styðja samvinnuútgerðina á hinum erfiðustu tímum. Allir bankar gerðu að skilyrði, að fyrirtækin hyrfu frá samvinnuútgerð.
Þegar hv. þm. S.-Þ. vill segja satt, þá ætti hann eingöngu að fara inn á hluti, sem hann þekkir, en ekki inn á það, sem hann þekkir ekkert til: Hann uppástóð, að fyrirtækin í bæjunum flýðu frá dýrtíðinni þar. Ég þekki útgerðarfyrirtæki, sem hafa farið héðan, en alls ekki flúið, því þessi fyrirtæki verða að bera þyngri byrðar annars staðar en í Reykjavík, vegna þess að Reykjavík hefur þegar búið betur að útgerðinni en aðrir staðir á landinu hafa getað gert. Þetta er nákvæmlega sama og hæstv. ríkisstj. gerir hér. Hún ætlar að búa betur að þjóðinni, svo að atvinnufyrirtækin geti borið sig og þjóðin fengið betri afkomu. Ég vil leyfa mér að benda hv. þm. S.-Þ. á, að þessi ófriður, sem nú geisar í veröldinni, verður ekki unninn nema með vélum. Friðurinn á Íslandi verður heldur ekki unninn nema með vélum. Það verður enginn friður hér um atvinnufyrirtæki í framtíðinni, nema hægt sé að hætta við gömlu aðferðirnar og koma á nýsköpun, sem gerir að verkum, að mennirnir afkasti minnu og vélarnar meiru. Við höfum dæmi frá erfiðu árunum 1926, þegar stríðið stóð um kaup á togurum út af lifrinni og við gátum ekki lengur greitt það, sem sjómennirnir þurftu að fá, ef við neyddumst til að hætta við gömlu tækin, bræða lifrina og gera úr henni verðmæta vöru fyrir menn úti um heim. Við gerðum það og sköpuðum sjómönnunum betri lífskjör fyrir þá nýbreytni. Það var nákvæmlega sama, þegar deilan var um kaupgjaldið vegna þess að frystihúsin fóru inn á að gera verðmæti úr þunnildum í stað þess að fleygja þeim. Það jók laun fólksins og afkomu útgerðarmanna. um 20%. 8líkir hlutir verða að gerast. Það sjá allir menn, sem ekki. eru enn í þúfnahugsunarhætti gömlu tímanna. Við verðum að skapa nýtt viðhorf fyrir fólkið, en hugsa ekki alltaf um, að það eigi að vera dæmt til að lifa í sömu fátæktinni og síðastliðin tvö hundruð ár.