13.10.1944
Efri deild: 59. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (735)
163. mál, manneldisráð
Forsrh. (Björn Þórðarson):
Herra forseti. Þetta mál, sem hér liggur fyrir, þarfnast ekki langrar ræðu af minni hálfu, því að í aths. við frv. er gerð glögg grein fyrir, hvers vegna það er hér fram borið. Frv. þetta er fram borið sem afleiðing og niðurstaða af gerðum nefndar, sem sett var á stofn með bréfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins 5. júní 1939. Það var 7 manna nefnd, og öðlaðist hún nafnið manneldisráð. Þessi n. eða þetta ráð var skipað þannig, eins og sjá má, að þar var valinn maður í hverju rúmi. Og skilaði n. af sér störfum 2. des. s.l., og var það alllangt nál., sem hafði verið samið. Og þetta nál. var prentað og síðan sent þeim, sem helzt mátti gera sér von um, að létu málið til sín taka, og þar á meðal hv. alþm. — Ein af niðurstöðum nál. var sú, að það yrði fram haldið störfum manneldisráðs og skipað yrði með sérstökum l. fast ráð kunnáttumanna. Og fer frv. þetta fram á, að slíkt ráð kunnáttumanna verði skipað, þar sem stj. var einnig þeirrar skoðunar, að það væri rétt, að haldið væri áfram rannsóknum þeim, sem manneldisráð hafði hafið og starfað að.
Skal ég láta hér staðar numið og vísa hv. þm. fyrst og fremst til aths. við frv. þetta og svo til þeirrar bókar, sem þeir hafa í höndum um málið.