07.12.1944
Efri deild: 84. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í B-deild Alþingistíðinda. (738)

163. mál, manneldisráð

Frsm. (Haraldur Guðmundsson):

Herra forseti. Þann 19. júní 1939 skipaði þáv. ríkisstj. nefnd til þess að sjá um framkvæmd ýmiss konar rannsókna á mataræði þjóðarinnar, og skyldi hún gefa skýrslur um þessar rannsóknir og ábendingar, eftir því sem niðurstöður gæfu tilefni til. Þessi n. hefur síðan verið kölluð manneldisráð, en í henni eiga sæti landlæknir, sem er forseti ráðsins, kennarinn í heilsufræði við Háskólann, sem er framkvæmdastjóri n., forstöðumaður rannsóknarstofu Háskólans, berklayfirlæknir, tryggingayfirlæknir, hagstofustjóri og einn af bankastjórum Landsbankans. Þessi n. hefur skilað allýtarlegu áliti og gefið út skýrslu, allstóra bók, um rannsóknir sínar, og er þar mikinn fróðleik að fá, eins og þeim mun kunnugt, sem hafa kynnt sér þessa skýrslu. En með þessum störfum telur n., að hennar hlutverki sé lokið, en hins vegar er það álit nm., að eigi tilætlaður árangur að nást, þá sé rétt að halda þessari starfsemi áfram og ákveða henni fast skipulag, og það er efni þessa frv., sem er samið af landlækni. Landlæknir gerir ráð fyrir því, að sérstakri stofnun, manneldisráði, verði komið á fót til þess að halda áfram ýtarlegum, fullkomnum rannsóknum á mataræði þjóðarinnar og vera ráðuneytinu til aðstoðar um allt, sem að þessum málum lýtur. Jafnframt er gert ráð fyrir því, að kunnáttumaður í þessum efnum, sérfræðingur í heilbrigðisfræði, verði ráðinn sem framkvæmdastjóri ráðsins, og annist hann um eða framkvæmi sjálfur þær rannsóknir, sem um er að ræða, og viði að sér og vinni úr öllum þeim gögnum, sem berast ráðinu. Jafnframt gerir n. ráð fyrir, því, að þessi maður verði kennari við Háskóla Íslands í heilbrigðismálum, enda mun sú skipan hafa verið á þessum málum undanfarið. Nm. líta svo á, að hér sé um þýðingarmikið mál að ræða, sem nauðsynlegt sé og sjálfsagt, að gaumur sé gefinn, og mælir því með, að frv. verði samþ. og lögfest sú skipan, sem þar er gert ráð fyrir. Þetta frv., ásamt frv. um stofnun prófessorsembætta við Háskólann, sendi n. til umsagnar háskólaráði og fékk svar frá því dags. 19. nóv., sem ég skal nú lesa upp, með leyfi hæstv. forseta. Það hljóðar svo: „Til svars bréfi hv. heilbr.- og félmn. Ed., dags. 23. fyrra mánaðar, þar sem óskað er umsagnar um frv. til l. um stofnun prófessorsembættis í heilbrigðisfræði við læknadeild og frv. til l. um manneldisráð, leyfi ég mér að vísa til þess, að háskólaráð hefur áður haft þetta mál til meðferðar og hefur í bréfi til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins 20. sept. þ. á. mælt með því, að frumvörp þessi verði að lögum. Læknadeild Háskólans hefur einnig mælt með frumvörpunum.“

Það var fullkomið samkomulag milli háskólaráðs og læknadeildar annars vegar og ríkisstj., sem þá var, hins vegar um nauðsyn á því, að þessu máli sé hrint í framkvæmd og sú skipan á höfð, sem frv. gerir ráð fyrir, og eins og áður er sagt, hefur heilbr.- og félmn. fallizt á þessi rök og mælir með því, að frv. verði samþ., og einnig það frv., sem næst er á dagskrá.

Einn nm. var ekki viðstaddur, þegar málið var afgr. í n., og mun hann gera grein fyrir afstöðu sinni, ef hún fellur ekki saman við það, sem fram kemur í nál.