07.12.1944
Efri deild: 84. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (767)

164. mál, prófessorsembætti í heilbrigðisfræði

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég álít, að efni þessara l., sem frv. er um, eigi að vera í sérstökum l., en ekki að fellast inn í háskólafrv. á þskj. 308. Og í raun og veru skiptir það heldur litlu, hvort það frv. verður samþ. eða ekki. — Okkur hv. 6. þm. Reykv. og mér kemur alveg saman um, að þetta frv. miði að því að láta háskólann borga laun þessa manns, þ.e.a.s. að telja laun þessa manns með háskólakostnaðinum og losa þannig manneldisráð við þann kostnað. En hitt held ég, að sé alveg misskilningur, ef hv. 6. þm. Reykv. skilur það svo, að með þessu sé einhver aukakostnaður lagður á ríkissjóðinn. Það er ekki. Og það er ekki alls kostar rétt hjá hv. 6. þm. Reykv., sem hann sagði um þetta, að með ákvæðum þessa frv. og frv. um manneldisráð væri þessi prófessor settur í manneldisráð, heldur segir í frv. um manneldisráð, að ef manneldisráð telji þörf á, skipi ráðh. samkv. till. ráðsins einn eða tvo sérfræðinga til viðbótar í ráðið, og þessi maður á að vera prófessor og starfa jafnframt hjá manneldisráði. Og ég hygg, að sá ágæti maður, sem á hlut að máli, starfi nú að þessu. Og till. hafa komið fram frá rannsóknarstofu háskólans um það, að skipaðir verði og settir í launal. sérfræðingar og a.m.k. einn þeirra með prófessorslaunum. Og ég geri ráð fyrir, að sá sérfræðingur, sem hér yrði þegar í stað ráðinn, yrði sjálfsagt sami maðurinn, sem hefur unnið að þessu, og með jafnháum launum, svo að hér er ekki um nokkurt kostnaðaratriði að ræða. Hér er aðeins að ræða um það, hvort á að telja kostnaðinn með háskólakostnaði og hvort þessi maður á að hafa prófessorsnafnbót og réttindi. Og ég tel alls ekki illa til fundið, að hann sé prófessor og aukinn sé þannig hróður háskólans og starf þessa manns teljist til starfa háskólans. Hér er ekki um aukakostnað að ræða, og því ekki rétt að blanda þessu frv. saman við hitt frv. á þskj. 308 og segja: Ja, nú eru það orðnir 8 kennarar, sem á að bæta við í háskólanum.

Ég álít, að það eigi að samþ. þetta frv. fljótt, svo að það sé ekki að þvælast fyrir hinu frv., og vil ég beina því til hæstv. forseta að láta þetta einfalda mál, sem er í samræmi við frv. um manneldisráð, ganga til afgreiðslu, því að það er hinu frv. alveg óviðkomandi. (Forseti: Ráðh. hefur óskað eftir að fá frv. afgreitt nú þegar.) Já, ég er samþ. því. Ég álít ekki, að það eigi heima í háskólafrv. á þskj. 308, hvað sem mönnum sýnist síðar um það, hvort ætti að taka þetta embætti upp í háskólal. En það er ekki til neins trafala, þótt svona l. séu til sér í lagi. Hitt væri annað mál, að þetta frv. væri fellt inn í frv. um manneldisráð.

Það er náttúrlega aukaatriði, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að kennararnir við háskólann væru yfirleitt ekki eftir lagabókstaf kennarar í neinum sérstökum greinum. En ég hygg, að slíkt sé miklu meira í læknadeild en í öðrum deildum háskólans. Ég held, að þar sé það afmarkað, hvað hver kennir. Í minni deild er það ekki.