07.12.1944
Efri deild: 84. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (771)

164. mál, prófessorsembætti í heilbrigðisfræði

Magnús Jónsson:

Það er aðeins af því, að hv. 6. þm. Reykv. taldi mig hafa misskilið, að eftir frv. ætt þessi prófessor að vera meðlimur í manneldisráði, en ekki sérfræðingur í þjónustu þess. Ég hélt mig við 2. gr. frv., en þar stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Auk kennslu í heilbrigðisfræði í læknadeild háskólans skal prófessorinn í heilbrigðisfræði annast heilbrigðisfræðilegar rannsóknir fyrir ríkisstjórnina, þar á meðal manneldisrannsóknir í samráði við manneldisráð.“ Ég skil þetta svo, að ekki sé beinlínis gengið út frá því, að hann sé í manneldisráðinu, en ég get hugsað mér, að hann væri nokkurs konar framkvæmdastjóri ráðsins, og það getur vitanlega falið mönnum fullkomið starf, og það var ekkert annað, sem ég tók fram.

Út af orðum hv. þm. Str. vil ég taka fram, að ég hlýddi á fyrirlestur, sem Níels Dungal prófessor hélt á háskólahátíðinni um skylt efni, og ég undraðist að heyra, hvað mikil vísindagrein þetta er og hvað það getur varðað ófyrirsjáanlega miklu, hvort vel er fylgzt með í öllu, er varðar þessa vísindagrein. Það má segja, að við getum notað reynslu annarra, en bæði eigum við að leggja okkar skerf í slíkar rannsóknir og svo eru sjálfsagt mörg sératriði hjá okkur, sem við þurfum að rannsaka sérstaklega.