07.12.1944
Efri deild: 85. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 673 í B-deild Alþingistíðinda. (777)

164. mál, prófessorsembætti í heilbrigðisfræði

Frsm. (Haraldur Guðmundsson):

Það hefur skeð það sjaldgæfa, að ég hef sannfærzt undir umr. Mér finnst einsætt að láta frv. ganga fram sem sérstakt frv., en ég vil benda hv. 6. þm. Reykv. á, að þótt frv. væri afgr. úr þessari d., þá stendur jafnopið að koma með brtt. í Nd. við það eins og brtt. við háskólafrv. Ég skil, að hv. þm. er ekki viðbúinn að koma með brtt. við þetta frv. nú, en ég vil benda honum á, að það er hægt að koma á framfæri brtt. í Nd., og það er eðlilegt, að hæstv. ráðh. óski eftir að hraða málinu sem mest, þar sem nú er mjög liðið á þingtímann.