07.12.1944
Efri deild: 85. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 674 í B-deild Alþingistíðinda. (782)
164. mál, prófessorsembætti í heilbrigðisfræði
Eiríkur Einarsson:
Með því að annað frv., sem liggur fyrir d., hefur sætt þeirri meðferð, að n., sem um það fjallaði, taldi sér nauðsynlegt að leita ýtarlegrar umsagnar háskólans sjálfs og einnig að leita annarra gagna, sem fyrir hendi eru, en mér hefur hins vegar ekki gefizt kostur á að ganga úr skugga um, hvernig sakir standa með þetta mál, þá treysti ég mér ekki til að leggja dóm á réttmæti frv. og greiði því ekki atkv.