24.11.1944
Efri deild: 75. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í B-deild Alþingistíðinda. (80)
183. mál, nýbyggingarráð
Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. — Hv. 1. þm. Eyf. talaði um, hvers vegna nefndin hefði getað hraðað svo mjög störfum. Það var vegna þess, að þetta var einn hluti málefnasamningsins, sem gerður var vegna stjórnarmyndunarinnar.
Ég skil ekki, hvernig hv. 1. þm. Eyf. getur hugsað sér, að slíkur samningur sé gerður. Það verður auðvitað að gera hann áður en stjórnin tekur við völdum. Þessi samningur var gerður utan þings. Við höfum ekki þá trú, að þingmenn öðlist neina náðargáfu við að sitja á þingi, þeir hafa jafna aðstöðu til að mynda sér skoðanir utan þings sem innan. Mál þetta fær síðan sína þinglegu meðferð, þótt um það hafi verið samið utan veggja þingsins. Það skiptir engu, hvort heldur það er með afbrigðum eða ekki. En það er augljóst, að flokkar geta ekki gert með sér samning, án þess að það sé gert utan þings. Það er ekki annað en leikaraskapur að ræða slíkt á þingi. Þetta er þegar yfirlýst, að samningur hafi verið gerður. Aðra aðferð var ekki hægt að viðhafa, og ekkert hefur verið gert, sem ekki er fullkomlega þinglegt. Ég veit ekki, hvers vegna málinu er hraðað svona mikið, það var aðeins óskað eftir því af ríkisstj., enda sé ég enga ástæðu til að draga það.
Hv. 1. þm. Eyf. sagði, að ekki hefði þýtt að koma með brtt. Það er ekki alls kostar rétt. En ég taldi að heppilegra mundi að afgreiða málið hér án þess að tefja það með brtt. Alþ. hefur alveg nóg að gera, ef það ætlar að ljúka störfum á sómasamlegum tíma.
Því var lýst yfir, að frjálst væri að koma með brtt., ef okkur þætti það þess virði að tefja málið. En það er bara engin ástæða til þess. Það er t.d. engin málvilla, sem hv. 1. þm. Eyf. talaði um, og það er ekki ástæða til að þvæla málinu milli deilda fyrir slíkar sakir.
Ég sé engan leikaraskap við það, þótt málinu væri vísað til nefndar, það var ekki tekið fyrir fyrr en degi síðar en það kom til nefndar. Hv. minni hl. hefði sjálfsagt haft tíma til að láta prenta sínar breytingartillögur. Það hefur oft verið hafður drjúgum meiri hraði á málum en þetta. Andstæðingarnir hafa ekki verið sviptir neinum rétti. Þeir greiddu atkv. með afbrigðum. Það er heldur ekkert undarlegt, því að þeir vita eins vel og við, að full ástæða er til að hraða málinu, úr því að þess er óskað.
Mér brá dálítið, þegar hv. 1. þm. Eyf. sagði, að þetta væri efnislaust eða gagnslaust frv. Ég veit ekki, hvað mörg frv., sem hér koma fram, eru efnisrík, ef þetta á að vera efnislaust frv. Ég gat þess, að þetta væri eitt hið mesta frv., sem fram hefur komið, þar ræðir um ráðstöfun á 300 millj. króna. Ég hefði gaman af að sjá þá stj., sem hefði gert þetta án þess að leita samþykkis þingsins.
Það kostaði ekkert lítinn tíma að fá þetta samkomulag í gegn og koma sér niður á að leggja til hliðar 300 millj. kr. Skipulagning nýsköpunar atvinnuveganna er svo stórt atriði, að það þarfnast mikils undirbúnings og nákvæmrar athugunar.
Ég skal ekki fara út í það, að atvinnuvegirnir verði að bera sig. Mér er dálítil , spurn, hvernig andstæðingarnir hugsa sér að fara að, ef á að tryggja fyrir fram, að t.d. útgerð togara beri sig, áður en í nokkuð er ráðizt.
Það má segja, að það ætti að vera búið að tryggja verðlagið innanlands. En ekki hefur Alþ. haldið út að færa þetta í lag, og býst ég við, að það væri erfitt fyrir allar ríkisstjórnir að fá kaupgjald lækkað. Og ef beðið væri eftir því, býst ég við, að þær væru farnar að skerðast milljónirnar okkar utan lands.
Ég held, að framleiðsla með þeim beztu tækjum, sem hægt er að fá, hljóti alltaf að bera sig. Fiskveiðar á beztu fiskimiðum heims með hinum beztu fáanlegu tækjum hljóta alltaf að bera sig. Hitt er stórkostlegt atriði, að láta tækin bera sig í höndum þeirra, sem með þau fara í það og það skiptið. En vafi er ekki á, að slíkt borgar sig, að hafa sem bezt og fullkomnust tæki. Við verðum að treysta því, að allir, sem hlut eiga hér að máli, skipti réttlátlega og að þeir, sem með tækin fara, geti haldið þeim áfram.
Þessar brtt. eru að vissu leyti nánari útfærsla á því, sem í frv. stendur, en að öðru leyti eru þær þrengri. Ég held, að það sé um að gera að hafa umgerðina nógu víða. Ríkisstj. á með reglugerð að ákveða starfssvið nýbyggingarráðs. Ég held það sé heppilegast að hafa nokkurn veginn rúmt. Í brtt. er talið fleira upp en í frv. er nefnt, en ég sé ekki annað en að það falli allt undir það, sem þar er nefnt. Það getur verið nauðsynlegt frá þjóðhagslegu sjónarmiði að kaupa tækin innanlands, eftir því sem við verður komið, þótt þau kunni að verða nokkuð dýrari en ef þau eru keypt erlendis. En ég lít svo á, að ef nokkuð á að ganga, verði að kaupa þau að mestu leyti utanlands.
Hæstv. fyrrv. ríkisstj., sem hv. 1. þm. Eyf. taldi mjög klóka, fór inn á þá braut að kaupa skip utanlands, í stað þess að láta byggja þau hér heima. Ef við ætlum að bíða eftir því að verða fullkomlega samkeppnisfærir á þessu sviði, gæti farið illa.
Hv. 1. þm. Eyf. var hræddur um, að lagðar yrðu niður mþn., sem eigi hafa lokið störfum, og að á þann hátt yrði eyðilagt mikið starf. Í frv. segir, að þegar þær hafi lokið störfum, eigi að leggja þær niður jafnóðum. Eins og er, þá er það algerlega frjálst, hve margar nefndir eru lagðar niður og hvenær.
Ég sé ekki ástæðu til að samþ. þessa brtt. Ég held, að þetta sé svo víðtækt mál, sem við erum að leggja út í, að reynslan verði að skera úr um, hvað heppilegast er að gera. Við verðum að treysta því, að þeir, sem með þessi mál fara, fari skynsamlega með þau og vilji prófa sig áfram, eftir því sem viðhorfið er á hverjum tíma.
Ég held því, að réttast sé að samþ. frv. óbreytt og tefja framgang þess ekki frekar.