24.11.1944
Efri deild: 75. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (81)

183. mál, nýbyggingarráð

Frsm. minni hl. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. — Mér þykir hv. forseti haga sér einkennilega, þar sem hann heldur fundi áfram, þótt komið sé fram yfir venjulegan fundartíma, og það því fremur, sem hv. 1. þm. Reykv. lýsti yfir, að hér væri um að ræða stærsta mál þingsins. Það hefði því mátt ætla, að afgreiðslu þess yrði ekki flaustrað svo mjög sem raun er á. En sýnt er, að hverju stefnir, og skal ég því vera stuttorður, en get þó ekki komizt hjá að svara ýmsu, sem fram hefur komið. Hv. 1. þm. Reykv. taldi, að málið hefði sætt eðlilegri og þinglegri meðferð, þar sem þetta væri eitt atriði málefnasamningsins og því verið fyrir fram ákveðið. Ég sagði aðeins, að ég hefði ekki getað verið með í slíkri afgreiðslu, þar sem ég átti aðeins kost á að segja já eða nei. Ég veit ekki til, að í nokkru máli hafi verið samið svo gagngert um hvern stafkrók fyrir fram, að engar athugasemdir gætu komizt að.

Mér skilst, að það hafi áður verið samið um meginstefnu ríkisstj., sem sett hefur verið á laggirnar, en ekki það, að það mætti ekki breyta orðalagi í lagafrv., sem allir viðurkenna, bæði stuðningsmenn og andstæðingar hæstv. ríkisstj., að betur mætti fara.

Hv. frsm. var að tala um það, að málið fengi þinglega meðferð þrátt fyrir þetta, það væri hér fylgt öllum formum. Þetta er rétt, að nafninu til er fylgt formum. En það var nú um minna samið fyrir fram stundum hér áður, þegar hæstv. kennslumrh. þótti það vera brot á þingræði og jafnvel á stjórnskipulagi,, og það allmikið brot.

Hv. þm. sagði, að það hefði ekki verið ástæða til þess að draga þetta mál á langinn eða tef ja það. Ég kannast ekki við það, að ég hafi hér á Alþ. reynt að tefja mál eða draga þau. Og ég er vel til með það, þótt ég sé ekki stjórnarstuðningsmaður, að styðja ríkisstj. í því, að þessu þingi gæti orðið lokið fyrir jól, eins og sjálfsagt er.

En út af þessum mikla dugnaði, sem sýndur hefur verið þessu máli, vil ég spyrja hv. formann og frsm. fjhn.: Hvaða tíma átti ég að hafa til þess að skila nál. sem minni hl. n.? Það er ekki mikið að skrifa nál., sem segir aðeins: „Nefndin leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt,“ eins og meiri hl. hefur gert.

Ég var á fundi í fjhn. til kl. 7 í gærkveldi, settist þá niður og skrifaði nál., og þegar ég var búinn að skrifa nál., var búið að loka hjá skjalaverði og skrifstofunni, svo að ég gat ekki komið með það fyrr en í morgun. Ég álít, að það hefðu verið alveg forsvaranleg vinnubrögð hjá mér, þó að ég hefði ekki skilað nál. fyrr en í dag. En málið hefði verið tekið á dagskrá í dag, þó að nál. frá mér vantaði. Frsm. sagði, að n. hefði viljað ræða till., sem ég lagði fram. Ég lagði fram till. í n., en þær voru ekki ræddar. En formaður n. sagði, að ef ég vildi bera fram aðrar till., mætti líta á þær. Og orð hv. frsm. sýna, til hvers hefði verið fyrir mig að koma með nýjar till. Jafnvel þó að þeir hlytu að fallast á, að þetta væri leiðrétting, sem nauðsynleg væri, gætu þeir ekki tekið hana til greina, vegna þess að það er samningur að samþ. frv. óbreytt. Það má engu breyta.

Hv. frsm. gerði mikið úr því, hve mikið efni væri í þessu frv., það væri hvorki meira né minna en að ráðstafa 300 millj. kr. Ég held það sé vafasamt, að þetta sé ráðstöfun á 300 millj. kr. Mér skilst, að það eigi ekki að ráðstafa þeim, heldur, eins og frv. segir, að leggja þessar millj. til hliðar, og menn eiga að geta fengið þær keyptar, ef þeir hafa peninga til þess. Og hvað nýbyggingarráð snertir, þá hef ég nú leitað að því eins og saumnál í frv., hvað það geti eiginlega framkvæmt samkvæmt því, og ég get ekki séð, að það geti framkvæmt mikið. Þær till., sem þessi nefnd getur gert, eru svipaðar og hjá hverri annarri mþn., og flest það, sem þessi n. eða ráð á að fjalla um, hefur verið unnið í mþn.

Já, hv. frsm. var að tala um það, út af till. mínum, að það væri ekki hægt að tryggja hallalausan rekstur, og hvaða gagn væri þá að því að setja ákvæði um það í frv. En ég vil þá spyrja: Hvaða gagn væri þá að því að leggja peninga til hliðar af innstæðum okkar erlendis, ef hér væri jafnaðarlega tekjuhallarekstur og þjóðarbúið rekið með tekjuhalla? Þá mundi koma að því, sem ég hef sagt í fyrri ræðu minni, að það yrðu teknar þessar innstæður til eyðslu.

Það væri efni í langt mál orð frsm. um, að það borgaði sig alltaf að afla verðmæta. Það getur verið, að það hafi alltaf einhverjir hag af því, að verðmæta sé aflað, en það getur verið mjög takmarkaður hagnaður og fé og starfsorku betur varið til að afla annarra verðmæta en þeirra, sem áður hefur verið aflað. Þess vegna þarf að rannsaka þau mál. Aðrar þjóðir geta og í bili haft hag af taprekstri okkar. Kannske hv, þm. hafi hugsað svo vítt. Sjóndeildarhringur hans er þá víðari en talað var um hér í fyrra af flokksbróður hans. Ef till. mínar eru aðeins nákvæmari útfærsla á frv., þá er mér spurn: Hvernig geta þær þá verið skaðlegar? Hvers vegna má þá ekki samþ. þær? Hv. frsm. hefur ekki talað um, að þær væru á neinn hátt til skaða, heldur aðeins, að þær væru þýðingarlitlar, og að það mætti gera þetta, þó að þær væru ekki samþykktar. Þetta ber allt að sama brunni, þetta er auðvitað vegna þeirra samninga, sem fram hafa farið, að það má engu breyta. Og það kann að vera nokkuð til í því, sem hv. frsm. sagði í lok ræðu sinnar, að allt þetta byggist á því í raun og veru, hvort menn treysta hv. núverandi ríkisstj. eða hvort menn treysta henni ekki. Það er vegna þess, að frv. er þannig úr garði gert, að það má framkvæma það á þann hátt, að úr þessu verði ekki neitt nema ráðagerðir einar, eða e.t.v. framkvæma það þannig, að einhverjar framkvæmdir hljótist af. Þó sé ég ekki, að um neinar heimildir sé að ræða í þessum l. Þegar sleppt er ákvæði 1. gr. um að leggja gjaldeyrinn til hliðar, er það eiginlega ekki hægt nema afla nýrra heimilda. Það eru till., sem nýbyggingarráð getur gert, en það eru ekki framkvæmdir, sem það getur unnið. Og í því mikla trausti, sem hv. frsm. ber til stjórnarinnar og aðrir stuðningsmenn hennar, leggja þeir nú til, að hæstv. ríkisstj. fái þetta frv. í hendur sem l. og vænta mikils af fyrir þjóðina. Ég aftur á móti skal játa, að ég ber ekkert traust til ríkisstj., eins og hún er samansett, þótt ég hins vegar geti borið traust til einstakra ráðh. sem manna. Það er allt annað mál, og þar af leiðandi er það ákaflega eðlilegt, að mér þyki þetta ekki mikils virði.

Nú hef ég aldrei haldið því fram, að ég teldi, að þetta frv. væri skaðlegt, þó að það yrði samþ. óbreytt, enda mun ég ekki greiða atkv. á móti því.

Það er rétt, sem hv. frsm. sagði, að þetta frv. gerði ráð fyrir því að gera ráðstafanir til þess að kaupa framleiðslutæki innanlands eða utan. En það er ekki nefnt um það, að nokkuð eigi að rannsaka þá hlið málsins, að innanlands vinna og framleiðslutæki geti fengizt með svipuðum kjörum og hin erlendu. Það er ákaflega mikil kvörtun um það, ef t.d. um viðgerð á skipum er að ræða, hvað skipasmíði og allt slíkt sé miklum mun dýrara hér á landi en annars staðar. Það er kannske mjög erfitt að fá þessu kippt í lag fyrir litla þjóð, því að það er eðlilegt, að eins lítil þjóð og Íslendingar hafi smærri stöðvar til slíkra hluta en stærri þjóðir. Það fer sjálfsagt mikið eftir því, hvað þær stöðvar eru stórar, sem tækju slíkt að sér. En þetta er atriði, sem mér finnst rétt að athuga, hvort hægt væri að finna einhverjar leiðir til þess, að við Íslendingar, a.m.k. á einhverju sviði gætum staðið jafnfætis öðrum þjóðum í þessu efni. Það má vera, að heimilt sé samkvæmt frv. að gera þetta, ég neita því, ekki. Ef hæstv. ríkisstj. vill, hefur hún heimild til þess að leggja slíkt fyrir nýbyggingarráð, en það er a.m.k. ekki boðið í frv. Og mér finnst alveg eins mikil ástæða til þess að ákveða það eins og ýmislegt annað, sem þar er ákveðið.

Hv. frsm. virtist leggja orð mín um taprekstur þannig út, um það atriði, hvernig við gætum orðið samkeppnisfærir við aðrar þjóðir, að við ættum að bíða þangað til við gætum orðið samkeppnisfærir. Það er ekki meiningin, að við eigum að setja fiskiflota okkar á land og hætta að heyja og þ.u.l., þangað til sýnt sé, að við séum orðnir samkeppnisfærir við aðrar þjóðir. En mér finnst full ástæða til þess að athuga möguleika á því, að við getum orðið það. Og ég verð að segja það alveg eins og það er, að ég kvíði nú þeim tíma, sem fer í hönd okkar Íslendinga, þegar aðrar þjóðir fá aðgang að því aftur að fara að veiða fisk og selja hann á heimsmarkaðinum. Það er náttúrlega af öðrum ástæðum óskandi, að þeir tímar renni sem fyrst upp. En ákaflega er ég hræddur um, að einmitt þá geti þrengzt fyrir dyrum hjá okkur Íslendingum. Og ég sé ekki, hvað ætti að vera skaðlegt við það, þótt nýbyggingarráð tæki það til athugunar, hvernig helzt mundi vera hægt að komast hjá illum afleiðingum af því fyrir okkur.