24.11.1944
Efri deild: 75. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í B-deild Alþingistíðinda. (83)
183. mál, nýbyggingarráð
Frsm. minni hl. (Bernharð Stefánsson):
Ég vil byrja á að mótmæla því mjög ákveðið, að ég hafi verið hér með málþóf og óþarfa tafir eins og hæstv. kennslumrh. ber á mig. Ég býst við, að það sé upphaf þessa nýja tíma, sem hér er að hefjast, að þeir þm., sem styðja ekki hæstv. stj., megi ekki segja skoðun sína á málum. Ég er frsm. nefndarhluta, og stjórnarliðið kallar þetta mál stærsta mál þingsins, og ég hef ekki enn eytt svipað því klukkutíma í að ræða um þetta mál Það er eitthvað alveg nýtt í þingsögunni að telja slíkt málþóf, að frsm. í stórmáli, sem þeir segja, að þetta sé, eyði þeim tíma í að gera grein fyrir afstöðu sinni.
Hæstv. ráðh. vék að því, að ég minnti á, að hann hefði stundum talið það stappa nærri stjórnarskrárbroti, að búið væri að einhverju leyti að sem ja um mál, áður en það kæmi inn í þingið. Hann vill nú telja það stjórnarskrárbrot að neyða þm. að greiða atkv. á móti sannfæringu sinni. Nú sór hann og krossaði sig, að nú greiddu allir stjórnarþingmenn atkv. samkvæmt sannfæringu sinni. Ég er ekki hjartnanna og nýrnanna rannsakari og skal ekki leggja dóm á sannfæringu manna. Hinu skal ég slá föstu, að undarleg stakkaskipti hafa átt sér stað hjá ýmsum hv. þm., ef þeir greiða nú atkv. samkv. sannfæringu sinni með þessu máli. Fyrir tíu árum var sett n. til að athuga ýmisleg þjóðþrifamál. Hún hafði ekki með öllu ósvipað verkefni og þetta ráð, nema ekki svipað því eins vítt starfssvið og nýbyggingarráði er ætlað að hafa samkvæmt þessu frv. Þá höfðu sumir hv. þm., sem nú fylgja þessu máli, ekki þá skoðun, sem nú kemur fram, og þá sannfæringu, sem þeir eiga nú að hafa um, að þetta eigi að samþ. Þá var það óskaplegur bolsevismi að samþ. þá n. Hún var kölluð Rauðka, og allt, sem frá henni kom, var blóðrauður bolsevismi og ekki um neitt annað að gera en að vera á móti þessari n. og öllu, sem frá henni kom. Ég skal ekki segja, hvort þessir menn hafa öðlazt nýja og betri þekkingu, svo að sannfæring þeirra sé nú allt önnur en þá var.
Hæstv. ráðh. segir, að þeim tíma sé ekki illa varið, sem sé varið til að ræða kjarna málsins. Ég þóttist nokkuð víkja að kjarna málsins, a.m.k. 2. og 3. gr. þess, en þar ætti hann helzt að vera. En að vísu er hinn rétti kjarni sá, að þessi stj. er sett á laggirnar með brauki og bramli og ákaflega rauð og radiköl ræða haldin, um leið og stj. er stofnuð, um að allt mögulegt eigi að gera, og síðan er það tvisvar sinnum spilað af plötu í útvarpið. Kjarni málsins er að gera þessa tilraun til að sýna þjóðinni, að eitthvað hafi verið meint með þessari háfleygu stefnuskrá, sem hæstv. stj. lagði fram í byrjun. Það er m.ö.o. auglýsing fyrir hæstv. stj. og áróður. Út af þessu segir hæstv. ráðh., að frv. framsóknarmanna í Nd. um gjaldeyrisráðstafanir hafi miklu fremur verið auglýsing og áróður. Það frv. var þó um sama atriði og það atriði þessa frv., sem hefur þó einhverja raunhæfa þýðingu, eins og ég tók fyllilega fram í fyrstu ræðu minni.
Þá skildist mér á hæstv ráðh., að þýðingarlaust væri að bera fram lagafrv. og till. fyrir þá, sem hefðu ekki traust á starfi stj., því að þeir treystu stj. ekki til að framkvæma það. Það getur verið nokkuð til í því, að það hafi ekki ýkjamikla þýðingu út af fyrir sig að bera fram till., en þó getur maður haldið, að lítilfjörlegar leiðréttingar á frv., sem stj. ber sjálf fram, gætu þar komið til greina. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. út frá þessum rökum hans: Hvers vegna bar hann fram stór lagafrv. og brtt. og allar mögulegar till., meðan hann var í stjórnarandstöðu og hafði ekkert traust á stj., sem hann ætlaðist til, að framkvæmdi þessar till.? Mér finnst þetta koma nokkuð í bága hvort við annað hjá hæstv. ráðherra.
Hann upplýsir, að sumt af því, sem nýbyggingarráði er ætlað að gera, sé þegar til athugunar hjá stj. Þetta eru upplýsingar, sem eru nýjar fyrir mig, að þessi athugun hafi þegar getað farið fram án stofnunar þessa ráðs, og sýnir þetta þá, að eitthvað kynni að vera hægt að gera án þess að stofna það.
Mér þótti hæstv. ráðh. fyrst takast upp, þegar hann sagði, að till. mín um að athuga, hvort ekki væri hægt að koma fyrir ákvæðisvinnu á ýmsum sviðum, væri sama og að gera hér þjóðfélagsbyltingu, sama og að taka upp þjóðskipulag sovétríkjanna. Þetta skil ég ekki vel. Ég veit ekki betur en að nú þegar sé til ákvæðisvinna. T.d. í vegavinnu hefur hún farið vaxandi, og veit ég þó ekki til, að það sé neitt sovétþjóðfélag á Íslandi. Annars legg ég ekki til í minni till., að nýbyggingarráði sé fyrirskipað neitt í þessu efni, heldur aðeins, að rannsakaðir séu möguleikar og gefnar nauðsynlegar bendingar um þetta efni. Hér var ekki verið að leggja til að setja neinn gerðardóm á atvinnurekendur og verkamenn, og ég held, að till. mín hafi verið lesin eins og viss persóna les biblíuna, ef það er fundið út úr henni.
Þá fór hæstv. ráðh. mjög fjálglegum orðum um, að nú hefðu þeir tekið höndum saman, sem hefðu mjög ólíkar skoðanir á þessu, en mér virðist öll stjórnarstefnan vera á þann veg, að mjög sé farið að færast í eina átt með stefnu þessara flokka í þessum málum, og það þá átt, sem hæstv. kennslumrh. má að vísu vel við una.
Þá upplýsti hæstv. ráðh. það, sem mér þykir vænt um að heyra, að mþn. yrðu ekki lagðar niður þrátt fyrir ákvæði frv., fyrr en þær væru búnar að ljúka störfum. Það má segja, eftir þessum upplýsingum hæstv. stj., að brtt. mín sé óþörf, en þessi yfirlýsing lá ekki fyrir, þegar ég gerði mína brtt. Hæstv. ráðh. verður því að virða mér það til vorkunnar, þó að ég bæri fram brtt. við frv. eins og það lá fyrir, því að ég gat ekki vitað um fyrirætlanir hæstv. stj. í einu eða öðru, hvernig hún ætlaði sér að framkvæma þetta.
Ég er hæstv. ráðh. sammála um, að það geti verið einn eða annar atvinnurekstur hér á landi, sem ekki borgar sig fyrir þjóðina að reka. Hann nefndi ýmsan iðnað, og ég býst við, að það eigi eftir að sýna sig eftir stríð, að hann borgi sig hvorki fyrir einstaklingana né þjóðina. Þá sagði hæstv ráðh., að ekki borgaði sig að framleiða kjöt til útflutnings. Ég álít reynsluna eiga eftir að skera úr um það. Það borgaði sig fram að stríði að framleiða kjöt fyrir útlendan markað, og yfirleitt var sá atvinnuvegur þá ekki stundaður með neinum styrkjum. Í stríðinu hefur það ekki borgað sig af ástæðum, sem við þekkjum. En reynslan á eftir að skera úr um, hvort það borgi sig eftir stríð, þegar nýir markaðir opnast, og álít ég sjálfsagt að athuga það mál gaumgæfilega, hvernig breyta eigi landbúnaðinum í það horf, að hann sé lífvænlegur atvinnuvegur og sem gagnlegastur þjóðinni. En það er of snemmt, meðan stríði stendur, að kveða upp þann endanlega dóm, að það borgi sig ekki í framtíðinni að framleiða kjöt fyrir erlendan markað.
Þá hef ég með fáum orðum í hvert skipti nákvæmlega notað minn framsögumannsrétt og býst ekki við að biðja um aukaaths., nema sérstakt tilefni gefist til, og kalli svo hæstv. stj. og fylgismenn hennar, að ég hafi hér beitt málþófi.