22.11.1944
Neðri deild: 80. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (856)
120. mál, fólksflutningur með bifreiðum
Sveinbjörn Högnason:
Herra forseti. — Eins og ég tók fram hér fyrr í umr., hafði ég skrifað undir nál. um þetta mál með fyrirvara. Og ég lýsti, af hverjum sökum það var. Það var vegna 7. gr. frv., sem meiri hl. n. vildi breyta, en ég var mótfallinn þeirri breyt. Brtt. meiri hl. samgmn. var í því fólgin að ákveða, að yfirumsjón þessara mála væri hægt að fela póststjórninni einni, en ekki „ákveðinni stofnun“, eins og aðeins stendur í 7. gr., þar sem um þetta atriði er að ræða. En ég flutti ekki neina sérstaka brtt., vegna þess að ég var því fylgjandi, að frvgr. fengi að standa óbreytt, eins og ég áður hafði upplýst. — Með þeirri skrifl. brtt., sem n. hefur nú orðið sammála um. við 7. gr., um að rýmka til í þessu efni, þannig að hægt sé að fela þetta einhverri stofnun, án þess þó að fastbinda það, að það skuli vera póstmálastjórnin, þá get ég fallið frá mínum fyrirvara. Því að það liggur í hlutarins eðli, ef í 7. gr. stendur: „Ráðuneytið getur falið ákveðinni stofnun “ o.s.frv., að sú stofnun getur verið póstmálastjórnin.
Fell ég því frá fyrirvara mínum, og er samgmn. því sammála um þær brtt., sem fyrir liggja, eftir að þessar skrifl. brtt. eru komnar fram.