17.01.1945
Efri deild: 104. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 707 í B-deild Alþingistíðinda. (875)
120. mál, fólksflutningur með bifreiðum
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. — Ég vil aðeins beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort það þyki fært að taka þessa till. til athugunar. Sams konar till. var felld við 2. umr. málsins. Ég vil jafnframt spyrja hv. flm. að því, hvort hann vilji ekki taka till. til baka og hún verði borin fram í Nd., því að þangað fer frv. hvort sem er. Þetta er ekki gert til þess að andmæla því, að n. sé þannig skipuð. Það er eðlilegt, úr því málið þarf að fara til Nd., að till. sé tekin til baka og borin fram þar. Ég vil aðeins minna á þetta og taka það fram, að það er ekki fyrir andúð á Búnaðarfélagi Íslands eða þeim mönnum, er þar sitja, að ég óska, að þessi aðferð sé höfð um málið.