12.09.1944
Neðri deild: 48. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í B-deild Alþingistíðinda. (930)

96. mál, flugvellir

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. — Á s.l. hausti, 1944, flutti ég ásamt hv. þm. Snæf. (GTh) og hv. 2. þm. Rang. (IngJ) frv. um sama efni og frv., sem fyrir liggur. .Það frv. byggðist á skilningi okkar á hraðvaxandi þörf og skilningi alþjóðar á nauðsyn aukinna flugsamgangna. Frv. dagaði uppi. Samgmrh. lagðist á móti því, en boðaði, að ríkisstj. mundi á næsta þingi flytja frv. sama efnis. Við flm. féllumst þá að fenginni þessari yfirlýsingu á það, að halda ekki frv. okkar til streitu. Ég fagna þessu stjfrv., sem hér kemur fram og er í aðalatriðum samið eftir frv. okkar. Ég skal ekki fjölyrða um frv., þar sem það mun koma til þeirrar n., sem ég á sæti í. Nokkrum stöðum, sem reisa skal á flugmannvirki, hefur verið bætt inn í frv., aðrir hafa verið teknir út, svo sem flugvöllur á Snæfellsnesi. Ég heyrði, að ráðh. hefði haft samráð þriggja sérfróðra manna um samningu frv., og munu þeir hafa ráðið helztu breytingunum. En auðsætt er, að frekari breytingar þarf að gera á frv. Ég tel sjálfsagt, að n. ræði við þá kunnáttumenn, sem til eru hér í þessum efnum. Enn fremur er það sjálfsagt, sem hv. 2. þm. S.-M. (EystJ) minntist á, að n. hefði sem bezt samráð við þm. sem víðast af landinu, m.a. um val staða, þar sem nauðsyn er að gera flugvelli.

Ég mun svo geyma mér frekari aths. við þetta frv. þar til við 2. umr., en vil ítreka þakkir minar til hæstv. ríkisstj. fyrir það, að hún skyldi nú bera þetta mál fram, svo sem hún áður hafði heitið í tilefni þess frv., er flutt var á síðasta þingi af mér og tveimur öðrum hv. þm.