05.12.1944
Neðri deild: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í B-deild Alþingistíðinda. (938)

96. mál, flugvellir

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Það eru sjálfsagt allir hv. þm. sammála um það, að nauðsynlegt sé að koma upp þessum lendingarstöðum fyrir flugvélar eða flugvöllum, til þess að flugferðir geti orðið að sem mestum notum. Þeir staðir eru nokkuð margir, sem hér eru taldir í frv. og brtt., þar sem fyrirhugað er að hafa flugvelli eða lendingarstaði fyrir flugvélar, og munu því líða nokkuð mörg ár, áður en byggingu þeirra allra er lokið. Hins vegar er mér persónulega kunnugt um það, að áhugi um þessa lendingarstaði er svo mikill, að það eru margar sýslur á landinu, sem vilja töluvert á sig leggja til þess að fá þá sem fyrst hjá sér. Og þá kemur, spurningin, hvort ekki sé rétt að notast við þann áhuga með því að nota til þessara framkvæmda þau framlög, sem sýslur, sveitarfélög og kannske einstakir menn vildu inna af hendi, til þess að lendingarstaðir fyrir flugvélar geti komið í byggðarlög þeirra sem fyrst. Eins og frv. er nú, er það útilokað, að slík framlög komi til greina eftir því. Þar er ætlazt til þess, að ríkið standi eitt undir þessu, en ekkert framlag komi þar á móti. — Ég vil vekja athygli hv. samgmn. á, hvort ekki væri hægt að koma því svo fyrir, að þótt það sé ekki gert að skyldu, að þessir aðilar leggi fram fé á móti ríkissjóði til þessara framkvæmda, þá sé hægt að nota sér þann áhuga, sem nú er til staðar um þetta, að menn eru fúsir til að leggja fram 1/3 eða jafnvel helming kostnaðar við flugvelli til þess að fá þá sem fyrst. Ég hygg, að hægt sé að ganga svo frá frv., að hægt sé að nota þennan áhuga manna í þessu efni, og ég hygg, að í alla staði sé rétt að gera það.

Ég er sammála því, sem hæstv. dómsmrh. (FJ) sagði, að n. taki frv. til athugunar á milli 2. og 3. umr. Og vil ég þá, að n. athugi þetta, sem ég minntist á.