26.01.1945
Efri deild: 111. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (959)
96. mál, flugvellir
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. — Samgmn. hefur haft mál þetta til meðferðar og leggur einróma til, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., að Seyðisfirði verði bætt inn í 2. gr. undir staflið d. N. hefur fengið þær upplýsingar, að hægt sé að hafa sæmilega góðan flugvöll á Seyðisfirði, nærri kaupstaðnum, og leggur því til, að frv. verði samþ. með þessari breyt.