12.01.1945
Neðri deild: 103. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í B-deild Alþingistíðinda. (986)

84. mál, kjör forseta Íslands

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. — Þetta frv., sem flutt var af fyrrv. ríkisstj., hefur verið til athugunar hjá stjskrn. um alllangt skeið, og hefur hún skilað nál., þar sem mælt er með því með nokkrum breytingum:

Í stjórnarskránni frá 17. júní 1944 eru nokkur ákvæði um framboð og kjör forseta. Í 3. gr. er ákveðið, að hann skuli vera þjóðkjörinn, og í 4. gr. segir, að kjörgengur sé hver 35 ára maður, sem fullnægi skilyrðum um kosningarrétt til Alþingis. að búsetuskilyrðinu undanskildu. Þá segir í stjskr. nánar um forsetakjör, meðmælendur forsetaefna og ýmis fleiri atriði, en ákveðið er, að síðan skuli setja sérstök lög um framboð og kjör forseta. Frv.,. sem fyrir liggur, er flutt til að fullnægja þeim ákvæðum.

Í 1. gr. frv. segir, að við kjör forseta skuli fara eftir sömu kjörskrám og við alþingiskosningar.

Þar vill n. gera orðabreyt: eina, taka upp hið formlega heiti: forseti Íslands — fyrir forseti, sem í frv. stendur. 2. gr. er um kjörstjórnir. — 3. gr. er um það, að forsrh. ákveði, hvern dag í júní eða júlí forsetakjör fari fram, og tiltaki tölu meðmælenda forsetaefnis úr landsfjórðungi hverjum. N. leggur til, að gr. orðist svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Forsetakjör skal fara fram síðasta sunnudag í júnímánuði fjórða hvert ár. Forsætisráðherra auglýsir kosninguna í útvarpi og lögbirtingablaði eigi síðar en þrem mánuðum fyrir kjördag og tiltekur hámarks- og lágmarkstölu meðmælenda forsetaefnis úr landsfjórðungi hverjum í réttu hlutfalli við kjósendatölu þar.“

N. leggur hér til að ákveða sama sunnudag júnímánaðar sem ætlaður er til alþingiskosninga þau ár, sem þær fara fram, en þær ber ekki á sömu ár og forsetakjör, nema svo vilji til, að þingrof verði á því ári, er kjósa skal forseta. Margt má færa með því og móti að láta þetta tvennt falla saman eða búa svo um, að það geti ekki fallið saman, að kjósa þurfi í einu þingið og forsetann. Eigi þótti rétt að hafa forsetakjör síðar á sumri en þetta. Þar sem nýr forseti skal taka við embætti 1. ágúst og nokkur tími fer til að telja atkvæði, verður svo stuttur tími eftir fyrir hann til að búast undir að taka við, að ekki má minni vera. Á hinn bóginn þótti æskilegt, að ekki þyrfti að kjósa fyrr á sumri. Þá er í brtt. lengdur tíminn frá auglýsingu kosningar til kjördags úr 2 mán. í 3 mán. og loks ákveðið, samkv. leyfi stjskr., að tiltekinn sé meðmælendafjöldi úr hverjum fjórðungi í hlutfalli við kjósendatölu þar. Rétt þótti að tryggja þannig, að forsetaefni hefði nokkurt fylgi í öllum landshlutum.

Við 5. gr. er sú brtt., að nöfn forsetaefna skuli prentuð á kjörseðla í stafrófsröð. Ef þetta væri ekki tekið fram, ætti samkv. frv. að sníða kjörseðla eftir kjörseðlum við alþingiskosningar, þar sem tekið er fram, af hálfu hvaða flokks hver frambjóðandi sé í kjöri, en hér ætti það alls ekki neina.

Næst er brtt. við 6. gr., einföld orðabreyt., afleiðing af fyrri brtt.

Við 11. gr. eru tvær brtt. Önnur er um, að forsetaefni megi senda umboðsmann í sinn stað til að vera við úrslit atkvæðatalningar, hin er ákvæði um, að hæstiréttur skeri úr ágreiningi, sem verða kunni um kjörgengi forsetaefnis. Með þessum l. er nefnilega gerð sú þýðingarmikla breyt. frá því, sem gildir um kosningu alþm., að Alþ. á ekki að úrskurða um lögmæti kosningar forseta né um kjörgengi hans, heldur eru þau störf í höndum hæstaréttar samkvæmt frv. N. féllst á þá stefnu, sem þar kemur fram. Í því sambandi get ég bent á, að jafnvel úrskurður um kosningu þm. er ekki nærri alls staðar í höndum þ. eins og hér, heldur, t.d. í Englandi, í höndum sérstakra dómstóla. En í frv. vantar hins vegar ákvæði um það, hver úrskurði um kjörgengi, því að þegar maður býður sig fram sem forsetaefni, er ekki um leið gengið úr skugga um, hvort hann fullnægi kjörgengisskilyrðunum, fremur en er um kosningar til Alþ. En ef athugasemdir koma fram að kosningum loknum um, að eitthvert forsetaefnið, ef til vill það, sem flest atkvæði hefur hlotið, fullnægi ekki kjörgengisskilyrðum, þá þarf að vera sérstakur aðili, sem úrskurðar um það. Er eðlilegt, að það sé hæstiréttur, eins og hann úrskurðar um gildi kosningar.

Næsta brtt. er við 12. gr., sem er aðallega urri skýrara orðalag. Ef aðeins er einn maður í kjöri, þá er hann réttkjörinn forseti Íslands án atkvæðagreiðslu, enda fullnægi hann skilyrðum um kjörgengi og um fullan framboðsfrest hafi einnig verið að ræða. Gefur þá hæstiréttur út kjörbréf.

Þá vantar í frv. ákvæði um kærur út af kosningu. Um það atriði er ekki hægt að vísa til kosningal. Þetta atriði er alveg óákveðið. Nú er það augljóst mál, að ef kært er út af kjörstjórn, framboði eða öðru slíku, þá má að sjálfsögðu eins og endranær kæra til viðkomandi dómara. Ef kærur hins vegar koma fram um gildi kosninganna sjálfra, virðist sjálfsagt, að þeim kærum sé eingöngu beint til hæstaréttar. Þess vegna flutti n. 7. brtt. sína, að aftan við 14. gr. komi ný málsgrein varðandi þetta. Það er óhjákvæmilegt, að hæstiréttur fái slíkar kærur til athugunar með nokkrum fyrirvara. Þegar kæra skal til refsingar, ber að fara venjulega dómstólaleið til þess að koma í veg fyrir, að slíkar refsikærur fari beint til hæstaréttar.

Síðasta brtt. n. er um það, að aftan við 14. gr. komi ný gr. um það, að l. þessi öðlist þegar gildi.

Fleiri eru brtt. n. ekki. Vænti ég, að þær verði samþ. og frv. nái fram að ganga.