26.04.1946
Efri deild: 114. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 851 í B-deild Alþingistíðinda. (1000)
7. mál, skipakaup ríkisins
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Ég held, að allir hljóti að vera sammála um það, að það sé dálítið varhugaverð braut, sem hæstv. ríkisstj. hefur gengið inn á í þessu máli, að veita sjálfri sér með brbl. stórfelldar lánsheimildir. Á þessu þ. voru staðfest brbl., þar sem ríkisstj. hafði veitt sér 60 millj. kr. lánsheimild. Og í þessu frv. er um sams konar lánsheimild að ræða fyrir 30 millj. kr. Þarna eru 90 millj. kr., sem hæstv. ríkisstj. hefur veitt sjálfri sér heimild til að taka að láni, fyrir utan annað smærra af svipuðu tagi, þó að það sé lítilfjörlegt í samanburði við þetta tvennt. Það, sem ríkisstj. hefur gert í þessu efni, að veita sjálfri sér slíka heimild í jafnstórum stíl og hún hefur gert, er með öllu fordæmislaust hér á þessu landi og ég hygg, þó að víðar sé leitað þar, sem þingræðisstj. er á annað borð. Og þetta verður athyglisverðara fyrir það, að það er ekki annað hægt að sjá en þetta hafi verið þarflaust með þessi brbl., sem hér er leitað staðfestingar á og gefin eru út 13. sept. s. l. En á síðasta þ. í fyrra vetur var hæstv. ríkisstj. margbent á það, að Alþingi þyrfti, vegna ýmissa aðkallandi mála, að koma fyrr saman en stjórnin lagði til. Ef hún hefði sinnt þeim bendingum, hefði hún ekki þurft að taka til slíkra ráða sem þessi brbl. eru. Og það er ekkert neyðarúrræði að kalla saman þing í byrjun september, og hefði vissulega verið eins hægt fyrir ríkisstj. að gera það eins og að taka sér þetta vald, sem hún hefur gert. Ég ætla þó ekki að fara að innleiða neinar almennar umr. um þetta. En ég get játað, að þetta lán, sem hér er um að ræða og átti að verja til þessara framkvæmda, tel ég, að heppilegt hafi verið og nauðsynlegt, og þetta, sem ég sagði, á meira við formið en efnið. Þess vegna er það, að ég með öðrum nm. í fjhn. legg til, að frv. verði samþ. En þó að ég leggi til, að frv. verði samþ., þá er það á engan hátt í neinni mótsögn við það, sem ég hef sagt um þessa starfsaðferð ríkisstj. og það, að ég vil á allan hátt vara við að ganga lengra á þessari braut en gert hefur verið. Ég sé ekki annað en ef þingið tekur þegjandi við slíku frá ríkisstj., að þá muni það smám saman missa fjárveitingarvald sitt og umráð yfir fjármálum ríkisins í hendur ríkisstj. En einmitt umráðin yfir fjármálum og fjárveitingarvaldið er hornsteinn þingstj. og þingræðis. Og það, að nauðsyn þótti til bera hjá öðrum þjóðum að löggjafarþing kæmi í staðinn fyrir einveldi, mun vera aðallega af þeirri ástæðu, að þegnarnir vildu einmitt hafa hlutdeild í því, hvernig því fé væri varið, sem á þá voru lagðir skattar til að ná inn. En það kom fram við athugun málsins í fjhn., þar sem m. a. hæstv. ráðh. var viðstaddur og gaf skýrslu um framkvæmd þessa máls, að ekki væri þörf á allri þeirri lánsheimild, sem brbl. fjalla um.
Ég held, að allir nm. hafi verið sammála um það, eftir að hafa heyrt skýrslu ráðh., og að ráðh. var einnig sammála um það, að ekki mundi vera nein þörf á að hafa heimildina hærri en 25 millj. kr. í staðinn fyrir 30 millj. kr. Þess vegna er það, að ég hef borið fram brtt. á þskj. 968, um það að lækka lánsheimildina um þessar 5 millj. kr. niður í 25 millj. kr. Ég hreyfði þessu í n., og ég heyrði enga mótbáru móti þessu aðra en þá, að þá þyrfti málið að fara aftur til Nd. og gæti þess vegna tafizt. Ég fyrir mitt leyti geri ekkert úr þeirri mótbáru, því að ég held, að það hafi alls enginn ágreiningur verið um þetta mál í hv. Nd. Og ég geri ekki ráð fyrir, að það þyrfti að taka nema 1–2 mínútur að ganga frá málinu þar, þó að það færi til þeirrar d. En ég verð að segja það, að þó að þetta kunni að virðast lítilfjörlegt, hvort lánsheimildin er 5 millj. kr. hærri eða lægri, þá legg ég töluvert upp úr þessu. Mér finnst, ef frv. er samþ. óbreytt, eftir að það er vitað, að ekki er þörf á þessu, að þá sé það yfirlýsing Alþ. um það, að í það minnsta núverandi ríkisstj. sé alveg einráð um það, ef henni dettur í hug, að veita sér svo miklar lánsheimildir sem henni þóknast, því að Alþ. muni undir öllum kringumstæðum staðfesta það allt saman. Ef aftur á móti sýnd er ofurlítil viðleitni, þó að í litlu sé, til þess að spyrna þarna við fótum, þá álít ég, að ríkisstj. muni skoða það sem ofurlitla áminningu um það, að hið raunverulega vald til þess að taka skuldbindingar á herðar ríkisins sé hjá Alþ., en ekki hjá ríkisstj. Hins vegar virðist mér, að það hefði nokkra þýðingu fyrir Alþ. að ganga þannig frá málinu eins og ég legg til.