06.11.1945
Efri deild: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)
73. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Frsm. (Magnús Jónsson) :
Herra forseti. Eins og grg. þessa frv. ber með sér, er frv. flutt eftir ósk hæstv. viðskmrh., og mun hann að sjálfsögðu gefa um það þær upplýsingar, sem hv. þm. kynnu að óska. Annars er málið ákaflega einfalt. Í l. nr. 1 frá 1943, um innflutning og gjaldeyrismeðferð, stendur í 8. gr., að lög þessi falli úr gildi í síðasta lagi sex mánuðum eftir að núverandi Evrópustyrjöld er lokið. Og það hefur verið litið svo á, að þessi tími sé nú raunverulega kominn, og mætti jafnvel miða hann við daginn í dag, en vissar ráðstafanir, sem gera þarf áður en þessi l. féllu úr gildi, eru ekki fullkomlega komnar í höfn, og þess vegna hefur hæstv. ráðh. látið flytja frv. um að framlengja gildi l. út þennan mánuð.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um málið af hendi fjhn., sem flytur málið.