06.11.1945
Efri deild: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)
73. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð
Fjmrh. (Pétur Magnússon) :
Herra forseti. Ég hef í sjálfu sér engu við það að bæta, sem hv. form. fjhn. hefur sagt um frv. Ég skal samt sem áður gefa þær upplýsingar, að um mánaðamótin sept. og okt. s. l. var skipuð n. til þess að gera till. um, hverri meðferð þessi mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð, skyldu sæta eftir að l. frá 16. jan. 1943 rynnu út, sem talið er, að verði 8. nóv. n. k. Þessi n. hefur starfað um nokkurt skeið, og hygg ég, að megi segja, að hún sé nú um það leyti að ljúka störfum, og ég vænti þess á morgun eða hinn daginn að fá uppkast frá henni að nýjum l. um innflutnings- og gjaldeyrismálin.
Ég geri ekki ráð fyrir því, að það verði mjög hörð átök um þessi mál hér á hæstv. Alþ. Þó að margir mundu að sjálfsögðu kjósa, að hægt væri að lina mjög á hömlum á innflutningi frá útlöndum, þá er augljóst, að meðan við verðum að kaupa vörur í kvóta sem kallað er, getum við ekki komizt hjá að hafa einhverjar hömlur á verzlun í því sambandi. Það, sem um er að ræða, er ekki annað en að hafa stjórn á þeim hömlum, og ég geri ráð fyrir, að frv., sem væntanlega verður lagt fram um þetta í þessari viku, ætti að geta fengið afgreiðslu á hæstv. Alþ. fyrir lok þessa mánaðar, og því er aðeins lagt til í frv. þessu, sem hér liggur fyrir, að l. um innflutning og gjaldeyrismeðferð verði framlengd óbreytt til 1. des. 1945.
Fleira hef ég ekki um málið að segja, en vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að hann héldi annan fund að loknum þessum fundi og hinn þriðja að þeim fundi loknum, þannig að frv. þetta gæti helzt fengið afgreiðslu í báðum þd. í dag.