08.03.1946
Sameinað þing: 31. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2162 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Ég vil aðeins ítreka það, sem hv. þm. Str. sagði varðandi þáltill. þá, sem ég er meðflm. að, um landvistarleyfi nokkurra útlendinga. Ég vil mjög eindregið beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hún verði tekin á dagskrá á næsta fundi. Eins og hv. þm. Str. tók fram, þá gaf hæstv. fors.-og utanrrh. yfirlýsingu um það, að hann væri því mjög meðmæltur, að málið fengi eins skjóta afgreiðslu og hægt væri, þegar þing kæmi saman á ný, og eins mun hæstv. forseti hafa tekið fram, að till. skyldi koma fyrir á næsta fundi, sem haldinn yrði í sameinuðu þingi, eftir að þing kæmi saman.

Ég vil aðeins vekja athygli hæstv. forseta á því, að minni hl. utanrmn. hefur ekki enn þá skilað nál. um till., en hins vegar liggur fyrir nál. frá meiri hl., 5 af 7 þm., þar sem lagt er til, að till. verði samþ. Minni hl. beitti sér mjög gegn afgreiðslu málsins fyrir jól á þeim grundvelli, að honum hefði ekki unnizt tími til að koma saman nál. í svo stóru máli. En þó að nú sé liðið talsvert á 3. mánuð, síðan þessi umr. fór fram, þá hefur minni hl. ekki enn þá unnizt tími til að skila áliti um till. Ég vil þess vegna vekja athygli hæstv. forseta á, að það er ekki frambærilegt að láta þennan skort á nál. frá minni hl. koma í veg fyrir, að málið sé tekið á dagskrá. Ég vil þess vegna undirstrika það, sem hv. þm. Str. sagði um þetta, að við flm. óskum þess sameiginlega og hvor í sínu lagi, að málið verði tekið á dagskrá á næsta fundi og heit hæstv. forseta þar með efnd.