09.11.1945
Efri deild: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (1076)

72. mál, strandferðaskip

Frsm. (Ingvar Pálmason) :

Herra forseti. Samgmn. hefur að vísu haft nauman tíma til þess að fjalla um frv. þetta, en einstakir nm. hafa fylgzt með málinu frá því er það var lagt fram í þinginu. Auk þess eru nm. mjög kunnugir forsögu málsins, svo að þótt tíminn hafi verið stuttur, sem samgmn. hefur getað notað til að fjalla um málið síðan það var til umr. síðast, hefur n. getað notað þann sólarhring, sem málið hefur legið fyrir hv. þd., til þess að ganga úr skugga um, að hér er á ferðinni nauðsynjamál og undirbúningur þess þannig vaxinn, að n. er einróma sammála um að leggja með því, að frv. verði samþ.

Ég held, að það sé ekki ástæða til þess fyrir mig fyrir hönd n. að hafa um mál þetta langa framsögu. Bæði var málið skýrt af hæstv. samgmrh. hér í hv. d. við 1. umr. og auk þess er þetta áhugamál flestra landsmanna og þá um leið sennilega áhugamál flestra eða allra hv. þm. Ég vil aðeins benda á, að það munu vera liðin hartnær 50 ár síðan upp var tekið svipað fyrirkomulag um strandferðir hér við land og gert er ráð fyrir í þessu frv., þannig að strandferðaskipin voru tvö, og gekk annað austur fyrir land og hitt vestur fyrir land. Okkur, sem munum þann tíma vel, hefur alltaf verið ljóst, að þetta fyrirkomulag reyndist þá og mun reynast heppilegasta fyrirkomulagið um strandferðir. Hitt er svo annað mál, að tímarnir eru breyttir, og mér er það alveg ljóst, að þetta fyrirkomulag verður að miða aðallega við fólksflutninga og þá vöruflutninga á þá staði, sem liggja vel við til uppskipunar og valda sem minnstum töfum skipanna við vöruflutninga þangað. Mér er því fyllilega ljóst, að til þess að fullnægja þörfum landsmanna um strandferðir, þá verða þessi tvö skip, þó að mjög æskileg séu og að mínu áliti alveg sjálfsögð, ekki nóg til þess að fullnægja flutningaþörfinni, og verður því að hafa fleiri skip í förum með ströndum fram og þá til vöruflutninga. Og samkv. frv. er ráðgert að byggja einnig smærri strandferðaskip til þess að annast vöruflutninga, en þó þannig, að þau geti tekið farþega eftir því, sem þörf krefur og ástæður leyfa.

Ég get sagt það sem mína skoðun, að ég hefði fremur kosið, að stærð þessara flutningaskipa hefði verið nokkru meiri. En þrátt fyrir það hygg ég, að þessi áform, sem hér eru ákveðin, geti komið að verulegum notum. Og þó að þessi vöruflutningaskip séu smærri en ég hefði óskað, tel ég, að það þurfi ekki að neinu leyti að tefja fyrir framgangi málsins, því að ég hygg, að fyrir þau skip, sem frv. gerir ráð fyrir, að byggð verði til vöruflutninga, verði með tímanum nægileg þörf, þó að reynslan sýndi, að stærri vöruflutningaskip þyrftu að vera í förum með ströndum fram, — Ég læt þessa hugleiðingu fylgja með hér, ekki í því augnamiði að hafa nein áhrif á fyrirætlanir þær, sem ríkisstj. hefur með höndum og koma fram í frv., heldur til þess að benda á það, hvers ég hefði óskað í þessu efni. Og ég efast ekki um, að réttir aðilar muni hafa það í huga, að þetta kerfi, sem hér er sett upp, er ekki fullnægjandi. En hins vegar er haldið alveg í rétta átt, frá mínu sjónarmiði, og mjög æskilegt, að þessar framkvæmdir gætu komizt á sem allra fyrst.

Ég vænti þess, að hv. þd. verði samgmn. sammála um að greiða fyrir frv. þessu svo sem þörf er á, og samkv. upplýsingum hæstv. samgmrh. er nauðsynlegt, að málið geti orðið afgr. sem allra fyrst frá þinginu.