09.11.1945
Efri deild: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 870 í B-deild Alþingistíðinda. (1078)

72. mál, strandferðaskip

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Ég vil aðeins þakka hv. samgmn. fyrir fljóta og góða afgreiðslu á málinu og vona, að því megi koma til endanlegrar afgreiðslu í þessari hv. þd. helzt í dag, ef hæstv. forseti sæi sér fært.

Um frv. að öðru leyti hef ég ekkert að segja. Þær umr., sem hér hafa farið fram, gefa mér ekkert tilefni til neinnar orðræðu um frv. frekar, nema orð hv. þm. Barð. um Súðina. Það er öllum vitanlegt, sem þessi mál hafa kynnt sér, að rekstrarafkoma Súðarinnar og rekstrarafkoma Esju hefur á undanförnum árum verið ákaflega ólík. Esja hefur á undanförnum árum komið út með rekstrarafgang áður en reiknaður er sameiginlegur kostnaður, skrifstofukostnaður og annað, sem hefur verið frá 100–300 þús. kr. á ári, en í staðinn fyrir það hefur rekstrarhalli Súðarinnar verið frá 600–800 þús. kr. á ári. Hér í fskj. á þskj. 94 er tekið fram, að Súðin hefur verið rekin með 770 þús. rekstrarhalla, en Esja haft í afgang hátt á annað hundrað þús. kr., hvort tveggja miðað við afkomu áður en reiknaður er sameiginlegur kostnaður við rekstur strandferðanna, þannig að rekstrarafkoma Esju hefur verið upp undir 1 millj. kr. betri en rekstrarafkoma Súðarinnar. Það liggur því í hlutarins eðli og ég tel víst þegar á þessu stigi málsins, að Skipaútgerð ríkisins muni á einhvern hátt vilja losa sig við að reka Súðina, þegar þessi nýi skipakostur er fenginn. Það hefur ekki enn verið farið fram á að fá heimild til þess að losa sig við skipið, með því að ekki hefur verið athugað, hvort hægt er að fá nokkuð fyrir skipið eða hvort hægt er að selja Súðina til einhverra annarra hluta. Tel ég víst, að þegar þar að kemur, verði látnar fylgja þeim óskum um heimild til sölu upplýsingar um það, hvaða afsetningarmöguleikar væru fyrir hana, þegar þeir liggja fyrir.

Annað hef ég ekki um málið að segja á þessu stigi, en vildi aðeins endurtaka ósk um, að málið verði afgr. eins fljótt og mögulegt er.