17.04.1946
Efri deild: 110. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2163 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Gísli Jónsson:

Ég vil leyfa mér að benda hæstv. forseta á það, að það er nokkuð langt síðan gefið var út nál. um frv. um iðnfræðslu. Ég hef margsinnis sem form. iðnn. verið beðinn um að sjá til þess, að málið nái fram að ganga, og þegar ég sé, að nú eru sett á þessa dagskrá ýmis mál, sem ekki hefur verið samið um, þá vil ég vænta þess, að þetta mál verði tekið á dagskrá á næsta fundi. Það varð fullt samkomulag í n. um það að afgr. málið, og þar sem hér hafa verið afgr. mál, sem síður áttu fram að ganga, vænti ég þess, að hæstv. forseti taki málið á dagskrá.