29.10.1945
Efri deild: 17. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (1108)
10. mál, jarðræktarlög
Haraldur Guðmundsson:
Mér virðist, að þessar upplýsingar hv. þm. Dal. hafi spillt fyrir málinu. Það virðist allundarlegt að flýta svo mjög máli sem þessu, og það því fremur sem flm. þessa máls á sjálfur sæti í mþn., sem hefur þetta mál til meðferðar. En hv. þm. er svo brátt í brók, að þeir geta ekki beðið eftir því, að sú n. skili áliti sínu, og er það á allan hátt mjög undarlegt.
Ég skal annars ekki orðlengja þetta meira. Ég er sem sagt á móti þessu frv. og finnst, að í öllu falli ætti að bíða eftir áliti mþn.