29.10.1945
Efri deild: 17. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (1109)
10. mál, jarðræktarlög
Frsm. meiri hl. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Hann virðist nokkuð uppgenginn hérna við norðurhornið hjá hv. 3. landsk., en til þess liggja nú ýmsar ástæður. Ég vil upplýsa hv. þm. um, að mþn. sú, sem ég á sæti í, á ekkert sérstaklega að fjalla um 17. gr. jarðræktarlaganna, heldur að athuga möguleika á því í heild að halda niðri jarðaverði og mun vinna sjálfstætt að því verki, og það virðist fráleitt að láta það sitja í vegi fyrir því, að þetta mál hafi sinn gang. .................. Hann hefur gengizt fyrir að koma því til leiðar. Því miður hefur hann ekki haft skoðanaskipti, þó að málstaðurinn þyki slæmur.