23.04.1946
Sameinað þing: 37. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2164 í B-deild Alþingistíðinda. (112)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Stefán Jóh. Stefánsson:

Herra forseti. Ég vil leiða athygli hæstv. forseta að tveimur þáltill., sem Alþfl. hefur borið fram hér á þinginu fyrir nokkru. Er önnur þeirra um skipun milliþn. til þess að athuga verzlunar-, gjaldeyris- og viðskiptamál, en hin um skipun milliþn. til að athuga skattamál. Ég vildi óska, að hæstv. forseti vildi taka þessi mál á dagskrá á næsta fundi.