28.11.1945
Efri deild: 39. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í B-deild Alþingistíðinda. (1152)

123. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð (heildarlög)

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Herra forseti. Ég þakka hv. fjhn. fyrir að hafa tekið þetta mál til flutnings. Hv. form. og frsm. n. hefur nú gert svo skýra grein fyrir efni frv., að ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta. Hann hefur bent á allar aðalbreyt., sem gerðar eru í frv. frá núgildandi l. Og ef hv. þd. fellst á þær breyt., vildi ég mælast til þess, að hv. d. hraði afgreiðslu málsins. Ég get ekki sett mig á móti því, að málið verði athugað í n. til fyrramáls. En það er nauðsynlegt, að þetta frv. nái samþykki Alþ. á morgun, því að 1. desember falla l. um þetta efni úr gildi, og verður því í síðasta lagi 30. nóvember að staðfesta ný l. í staðinn.