29.11.1945
Efri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (1164)
123. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð (heildarlög)
Frsm. minni hl. (Haraldur Guðmundsson) :
Hæstv. ráðh. vildi halda því fram, að ekki skipti miklu máli, hvort framkvæmd þessara laga heyrði undir ráðh. eða ríkisstj. í heild. Ég benti á það áðan, að á þessu er sá munur, að ef þetta heyrir undir ríkisstj., þá koma öll mikilsverð mál fyrir hana í heild, og ég tel eðlilegt, að fulltrúar allra flokka eigi sæti í slíkri nefnd sem þessari. Í frv. er sú meginregla tekin upp, að innflutningur skuli yfirleitt vera frjáls, nema á nokkrum vörutegundum. Hæstv. ráðh. hlýtur þó að viðurkenna, að fyrst um sinn getur þetta þó ekki orðið svo í framkvæmd.
Hæstv. ráðh. gat þess, að ágreiningur okkar mundi stafa af því, að við hefðum ólík sjónarmið á verzlun. Þetta mun rétt vera. Ég tel, að betur hefði farið á, að ríkið hefði ráðið öllum innflutningi á stríðsárunum, og ég hygg, að heppilegra verði, að ríkið hafi framvegis nákvæmt eftirlit með allri gjaldeyrisverzlun. Mitt álit á þeirri stétt, sem farið hefur með þessi mál á stríðsárunum, hefur ekki aukizt. Það er hæstv. ráðh. sjálfrátt að hafa aðra skoðun á þessu máli. En þótt það sé mín skoðun, að þessi mál séu bezt komin í höndum eins aðila, þá ber ekki að skoða þessar till. í því ljósi. Þær eru aðeins miðaðar við stundarástand.