29.11.1945
Neðri deild: 43. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (1171)

123. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð (heildarlög)

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Herra forseti. Í þessum mánuði voru framlengd lög um innflutning og gjaldeyrismeðferð til 1. des. n. k. Þegar það mál var til umr. í hv. deild, sagði ég frá því, að nefnd hefði verið skipuð til að athuga málið í okt. s. l., og hefur sú n. nú skilað áliti og till. um breyt. á lögunum, og eru þær á þskj. 237. Frv. þetta er algerlega shlj. frv. n., nema 3. gr. er bætt inn í, og er hún svo hljóðandi: „Nýbyggingarráð og viðskiptaráð skulu sameiginlega útbúa fyrir ár hvert heildaráætlun um útflutning og innflutning þess árs, magn og verðmæti, svo og um, til hvaða landa útflutningurinn fari og frá hvaða löndum innflutningurinn komi. Skal áætlun þessi miðast við það að hagnýta sem bezt markaðsmöguleika og fullnægja sem hagkvæmast innflutningsþörf landsmanna. Mánaðarlega skulu ráðin hafa sameiginlega fundi til þess að endurskoða áætlun þessa og breyta henni svo sem nauðsynlegt kann að vera vegna viðskipta við útlönd og gjaldeyrisástands þjóðarinnar.“

Það þótti rétt að halda þessum ákvæðum, og ef áætlun skyldi gerð, urðu nefndirnar að starfa saman. Og ætla ég, að um þetta verði ekki ágreiningur. Annars er hér ekki um miklar breytingar að ræða, en þó nokkrar, og vil ég rekja þær hér nánar. Á 1. gr. er gerð sú breyt., að nú er það ákveðið, fyrir hvaða aðalmenn hver varamanna skuli taka sæti í ráðinu í forföllum aðalmanna. Þetta þótti réttara, því að í viðskiptaráði eru menn frá öllum flokkum og því rétt, að maður frá sama þingflokki taki við. Einnig skal 2. mgr. 1. gr. núgildandi laga felld niður, um að ekki skuli skipa menn úr ákveðnum stéttum í viðskiptaráð, því að óþarfi er að hafa þetta ákvæði, þar eð engar líkur eru til, hvaða stjórn sem situr við völd, að hún taki upp slíkar reglur. — Í 2. gr. eru aðalefnisbreytingarnar. Í núgildandi lögum segir, að viðskiptaráð ráði, hvaða vörur séu fluttar inn, en nú á það að gera till. um, hvaða vörur skuli fluttar inn og hvaðan. Nú er það ljóst, að fyrst í stað skiptir ekki máli, hvor leiðin er farin. Því að það er ekki hægt að komast hjá meiri og minni hömlum á vörum frá nágrannalöndunum, þar eð vörur eru þar skammtaðar. Gjaldeyrismálum er nú svo háttað, að mjög hefur gengið á dollarainnstæðu okkar, og ekki kemur til mála að gefa innflutninginn frjálsan. Innflutningur frá Bretlandi er að mestu frjáls, þar sem enginn hörgull er á £, en þó eru innflutningshömlur á skranvörum. Það má segja, að sú stefnubreyting, sem kemur fram í þessu ákvæði frv., sé fremur viljaatriði en praksis. Reynslan hefur sýnt, að hömlurnar hafa hækkað vöruverðið, og líklegasta leiðin til að lækka það er að gefa verzlunina frjálsa. En nú er þó ekki gert ráð fyrir, þó að innflutningurinn eigi að teljast frjáls, að slakað verði á gjaldeyriseftirlitinu, og því má ekki gefa hann alveg frjálsan, því að slíkt gæti leitt til fjárflótta, sem hver þjóð vill fyrirbyggja. Í sömu gr. eru einnig ákvæði, sem eru afleiðing þess, sem á undan er komið um, að viðskiptaráð skuli ráðstafa gjaldeyri til vörukaupa erlendis og úthluta til innflytjenda innflutningi á þeim vörum, sem háðar eru leyfisveitingum, og eru þessar breyt. aðeins til að samræma þetta við lög um nýbyggingarráð frá 24. nóv. 1944. Einnig er í þessari gr. breyt, um ráðstöfun á farmrými. Í 2. gr. er svo ákveðið, að viðskiptaráð skuli annast ráðstöfun farmrýmis, en þessu er nú svo breytt, að það skuli gera það, ef nauðsyn krefur. Hér er einnig lagt til, að 5. tölul. 2, gr. í núgildandi lögum verði felldur niður, þar sem innkaupastarfsemi viðskiptaráðs þegar er að mestu hætt og ekki þykir sennilegt, að slík innkaup verði nauðsynleg á næstunni.

Á 3. gr. frv. hef ég þegar minnzt, og er hún nýmæli.

Breytingin á 4. gr. er eðlileg afleiðing af breyt. á 2. gr. Þó er hér orðabreyt., þannig að ráðh., en ekki öll ríkisstj., skuli setja reglugerð um starfsemi viðskiptaráðs. Þetta er aðeins orðabreyt., því að vitanlegt er, að sá ráðh., sem þetta heyrir undir, hefur úrskurðarvald í stjórninni, ef ágreiningur verður. Þá er í 5. gr. ákvæði um verkaskiptingu viðskiptaráðs og nýbyggingarráðs, þar eð ágreiningur hefur verið um þetta. Eru hér sett skýr og ótvíræð ákvæði til að fyrirbyggja, að slíkt geti komið fyrir. — Í 6. gr. er ákvæði um, að viðskiptaráði skuli greitt frá hverjum þeim, er innflutningsleyfi fær, ½% af upphæð þeirri, sem leyfið hljóðar um. — Í 9. gr. er ákvæði um það, að lögin skuli falla úr gildi í síðasta lagi 1. des. 1946. Þetta ákvæði er sett til að tryggja, að endurskoðun fari fram í tæka tíð. — Um fleiri efnisbreyt. mun ekki vera að ræða frá gildandi lögum. Og þar eð núgildandi lög falla úr gildi 1. næsta mánaðar, þá er nauðsynlegt, að frv. þetta verði samþ. eigi síðar en á. morgun. Ég vildi því beina því til hæstv. forseta, að hann sjái um, að málið fái lokaafgreiðslu í dag.