26.04.1946
Neðri deild: 123. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2164 í B-deild Alþingistíðinda. (118)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Eysteinn Jónsson:

Ég er ekki ánægður með úrskurð hæstv. forseta í þessu máli. Það er nú orðið alllangt síðan hann hét því að taka þetta mál á dagskrá, en nú hefur hann tekið það af dagskrá, þótt engar afsakanir væru fyrir hendi.

Af ræðu hæstv. forsrh. mátti skilja, að hann teldi ómögulegt að afgreiða mál án þess að hann væri viðstaddur, en ég ætla að segja það, að ef það álit hæstv. ráðh. væri rétt, þá væru það ekki mörg mál, sem þetta þing afgreiddi, og það er mín ætlun, að hann sæti hér ekki nú, ef hann væri ekki búinn að hnoða því saman, sem hann ætlar að segja í útvarpinu í kvöld.