12.11.1945
Neðri deild: 30. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (1186)

22. mál, sýsluvegasjóðir

Frsm. (Gísli Sveinsson) :

Herra forseti. Þessu máli, sem er frv. til l. um breyt. á l. nr. 102 19. júní 1933, um samþykktir um sýsluvegasjóði, var á sínum tíma vísað til samgmn, frá þessari hv. d., og samgmn. hélt um það nokkra fundi og athugaði þær aðstæður, sem hér lágu til, og sendi málið að öðru leyti, eins og venja er til um slík mál, til umsagnar vegamálastjóra. Eins og sést á nál., hefur vegamálastjóri orðið við þessari málaleitun og gefið nokkuð ýtarlega skýrslu um það, sem hér kemur til umr. í sambandi við þetta, eins og ástæður sýslufélaganna til vegagerðar, sérstaklega hvernig ástatt hefur verið um þau héruð, sem hafa hjá sér samþykktir um sýsluvegasjóði. Frv. fer fram á, að það hámark, sem í 3. gr. l. segir að megi ekki vera hærra en 6 af þúsundi, sem lagt er þar fram vegna fasteignaskattsinns, megi fara upp í 10 af þúsundi, hámarkið megi hækka. Í grg. fyrir frv. sjálfu eru færð nokkur rök fyrir því, hvernig á þessu stendur. S. l. ár hefur hvergi nærri hrokkið til það fé, sem samkv. þessu 20 ára gamla ákvæði á þennan hátt má veita úr ríkissjóði til móts við það, sem hreppunum fellst til á annan hátt. Stafar þetta bæði af því, að kröfur um vegagerð í sveitum voru þá miklu minni en nú og miklu minna um bifreiðar, en sérstaklega stafar þetta þó af því, að kaupgjald við vinnu sýsluvega og alla vegavinnu yfirleitt hefur komizt langt fram úr því, sem nokkur gat ímyndað sér, þegar þessi lagaákvæði voru sett. Hins vegar hefur fasteignaskatturinn mjög lítið hækkað í landinu, og er ekkert um það að segja nema skaplegt allt, því að það gefur að skilja, að fasteignaskattur yfirleitt getur ekki fylgzt með jafnóeðlilegri verðbólgu og hefur átt sér stað, en einmitt þess vegna hefur það, sem miðað er við fasteignaskattinn, ekki stefnt til hækkunar eins og verðlag í landinu. Af þessum ástæðum hefur orðið að draga saman seglin, og vinna og aðgerðir hljóta mjög að takmarkast í þessum héruðum, sem hér um ræðir, ef ekki verður hafizt handa, og í sumum héruðum er nú þegar komið í fullt óefni. Fyrir því er þetta frv. borið fram.

Ég tel ekki þörf á að ræða þetta frekar. Ef hv. þm. hafa kynnt sér, hvaða breyt. hér er um að ræða, þá held ég, að þeir muni allir vera á sama máli um framgang þessa frv.