29.11.1945
Efri deild: 41. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (1202)

22. mál, sýsluvegasjóðir

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Við fyrri umr. þessa máls minntist ég á, að í þessu efni hefði verið heppilegra að fara að á annan hátt, eða þannig, að sýsluvegasjóðsgjöldin yrðu innheimt með verðlagsvísitölu. Kæmi þá einungis til mála, að ríkissjóður hækkaði framlag sitt samkv. því. N. hefur ekki tekið þetta til greina. En úr því að hæstv. ráðh. hefur minnzt á þetta, vildi n. e. t. v. athuga þetta. Ég vil einnig benda á, að þótt þessar kröfur í vegamálum séu miklar, þá ber ekki að líta á þær allar sem fjárhagsspursmál, heldur sem réttlætiskröfur. Þau byggðarlög, sem sett hafa verið hjá til þessa, vilja eðlilega ekki una því, að þau verði sett hjá framvegis.

Ég vildi beina því til hæstv. ráðh., hvort ekki væri vert að athuga, hverjir væru aðalvegir, áður en gengið er á rétt þeirra, sem hingað til hafa ekkert fengið. Nú þegar framlög til nýrra vega munu nema um 4½ millj. kr. og til viðhalds 9 millj. kr., þá er sannarlega kominn tími til að koma þessu í fast form, þannig að það sé ekki eingöngu komið undir fylgi á Alþingi. — 1942 var ákveðið að gefa út línurit um vegi. Ríkisstj. átti að annast um þetta, en það er ókomið. Vildi ég nú mælast til, að hæstv. ráðh. sæi um, að fjvn. fengi þetta í hendur, áður en næstu fjárl. verða afgreidd. Ég vil því beina því til samgmn., hvort ekki væri rétt, að hún tæki þetta til athugunar, áður en málið verður endanlega afgreitt.