05.12.1945
Efri deild: 45. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 929 í B-deild Alþingistíðinda. (1286)

64. mál, ábúðarlög

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Hv. þm. Dal. kvartaði undan því, að menn hefðu gleymt forsetatign hans í landbn. Kom það illa við hans skap, sem von var. Enda vildi hann sýna, hver völd hann hefði og tók völdin sem form. n. og mótmælti því, að n. tæki málið til athugunar. Það má segja: Ólíkt höfumst við að. Við hv. þm. Barð. höfum dyggilega fylgt hv. þm. Dal. í að fá af létt því ákvæði, sem var í 17. gr. jarðræktarl., og hefðum við þess vegna vænzt hans forustu, hv. þm. Dal., áfram um að standa á móti þessu óþurftarmáli. En nú sækir hv. þm. Dal. það svo fast, að ákvæði þessa frv. gangi fram, að hann neitar jafnvel rækilegri athugun málsins.

Það er annars eftirtektarvert, að bæði hv. þm. Dal. og hv. 1. þm. Eyf. kunnu ekki annað fram að færa þessu. frv. til ágætis en það; að það væri ekki hættulegt eða ekki mjög hættulegt. Og sýnist þar nú orðin heldur lítil ástæða til lagabreyt., ef ekki er annað en það, að breyt. hafi ekki stórkostlega hættu í för með sér. Heldur hafa menn talið, að lagabreyt. ættu að vera réttarbót en að eina vörnin væri sú fyrir þær, að þær hefðu ekki mjög mikið óhagræði eða tjón í för með sér. Hins vegar kom fram í ræðu hv. 1. þm. Eyf., að hann taldi þörf á í sambandi við þessa löggjöf, að breytt yrði fleiri l., ef þessi löggjöf ætti að hafa þau áhrif, sem vekti fyrir hv. flm. Og það sýnist mér enn benda til þess, að það sé ástæða fyrir hv. landbn. að athuga þetta mál frekar. — Ég vil þess vegna vonast til þess, að hv. form. n. fallist nú á þau góðu orð hv. frsm., sem ég þakka honum fyrir, að sanngjarnt væri, að málið yrði tekið til frekari athugunar, ekki sízt vegna þess, að í ummælum hv. form. n. kom berlega fram það, sem ég hafði hugsað, að þessari löggjöf væri sérstaklega beint gegn utansveitarmönnum. Nú vefengi ég alls ekki, að það kunni að vera ástæðan til þess, að frv. er fram komið, og get fallizt á, að það kunni ástæður að vera til þess, að utansveitarmönnum líðist ekki að láta jarðir fara í eyði. En hinu tjáir alls ekki að neita, að það verður þá að vera séð fyrir öruggum dómstólum á milli sveitarfélaga annars vegar og utansveitarmanna hins vegar. Mér finnst ekki nema sanngjarnt, að landbn. taki til athugunar, hvort ekki sé hægt að finna meira öryggi í þessum efnum en frv. enn, sýnist hafa upp á að bjóða, ef hv. þm. Dal. vill nú taka upp sams konar ofbeldisaðferðir, sem hann vítti svo mjög í sambandi við 17. gr. jarðræktarl., og vill ekki hlýða góðra manna ráðum í tíma, heldur innleiða hér nýja kúgun. En það gæti tekið nokkurn tíma að fá þessari kúgun af létt aftur. Og til þess að spara hv. þm. margra ára baráttu gegn þessu, sem hv. þm. Dai. vill nú flaustra af, vil ég benda honum á, að n. taki þetta til athugunar á ný, til þess að vita, hvort ekki er hægt að fá nýtt fyrirkomulag á því, sem frv. þetta stefnir að og á að tryggja, þó að fast væri haldið við ákvæði frv. að öðru leyti.

Ég get nú látið máli mínu lokið með þakklæti fyrir það, að ræða mín hefur nú haft svo blíðkandi áhrif á hv. þm. Dal., að mér virðist, að hann vilji fallast á að láta á ný athuga þetta mál.