05.12.1945
Efri deild: 45. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1287)
64. mál, ábúðarlög
Frsm. (Eiríkur Einarsson) :
Ég bjóst varla við umr. um þetta frv., þó að það sé merkilegt að ýmsu leyti og geti gefið nýja réttaraðstöðu ríki og einstaklingum, þar sem það er nú komið til 3. umr. í síðari d. Því að þegar málum er svo langt komið, fer maður venjulega að eygja lendingarstaðinn. En mér finnst sanngjarnt, úr því að till. hefur um það komið, að frv. verði tekið til nokkurrar athugunar enn af landbn. Segi ég það ekki af því, að ég sé ekki óbreyttrar skoðunar um meginefni frv. Ég hef fyrirvaralaust skrifað undir nál. og meira og minna tekizt á hendur framsögu í því og segi með því, að ég sé með frv. En hins vegar hefur komið hér fram krítík um það, að hér sé ekki vel um hnúta búið. Og einmitt af því, að frv. er ætlað að verða til réttarbótar, þá þarf sú n., sem fjallar um málið, því fremur að vanda athugun á því.
Hv. 6. þm. Reykv. hefur haft orð á því, að þó að úttektarmönnum megi yfirleitt treysta, þá sé ekki einhlítt, að ekki geti út af borið, og þá megi allir vita, að lög þessi hafi opnað dyr fyrir okkur til þess að áfrýja því, sem gert er eftir þeim, til æðri dómstóla. Og með þetta fyrir augum vildi ég, að málið væri athugað á ný af landbn., en hins gat ég, að það væri lagt til af mér því aðeins, að það mætti ekki mótmælum frá gildum stöðum, þar sem ég átti sérstaklega við hv. form. landbn., því að hv. þm. Dal. er form. landbn., og því er það hann, sem kalla þyrfti saman fund til þess að taka þetta mál til athugunar, en ekki ég. Þetta er minn einkavilji í þessu, að mér finnst málinu ekki spillt með því, að það fari til athugunar á ný í n., og að með því mætti taka mýkra og sanngjarnara á því, án þess þó að vera nokkuð reikandi um álit mitt á meginákvæðum frv. Ég vil því láta athuga frv. betur, ef ekki koma mótmæli gegn því frá gildandi stað, það er hv. form. landbn.