05.12.1945
Efri deild: 45. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)
64. mál, ábúðarlög
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Mér finnst, að hv. 6. þm. Reykv. og aðrir soldátar í liði hæstv. ríkisstjórnar ættu sízt af öllu að taka sér í munn orðið ofbeldi í sambandi við landbúnaðarmálin. Það hefur nú sýnt sig á undanförnum árum viðkomandi sölu jarða og annarra ráðstafana viðvíkjandi þeim, að allur útreikningur Sjálfstfl., þar á meðal hv. þm. Dal., út af 17. gr. jarðræktarl., hefur ekki haft við neitt að styðjast. Og mér þætti fróðlegt að heyra, ef nokkur maður gæti bent á nokkurt ofbeldi í sambandi við það mál. Hitt er vitað, að hér stendur til á Alþ. af stjórnarliðinu að beita alla bændastétt landsins því ofbeldi að taka af henni allan umráðarétt yfir afkomumöguleikum sínum og atvinnu. Skal ég svo ekki fara frekar út í það, því að það er ekki hér á dagskrá.
Það var hv. 6. þm. Reykv., sem minntist á þetta mál hér. En hann gat ekki haft rétt eftir mér það, sem ég sagði áður. Hv. 6. þm. Reykv. sagði, að það eina, sem ég og hv. þm. Dal. hefðum að segja þessu máli til gildis, væri það, að það væri ekki hættulegt. Ég tók einmitt fram atriði, sem mér fannst mjög þýðingarmikið, kost, sem ég taldi vera á frv., sem sé þann að leggja sömu skyldur í vissum efnum á ríkissjóð, sem á jarðir, eins og hafa verið lagðar á einstaka menn, sem eiga jarðir í leiguábúð.
Það er að vísu rétt, að ég tók fram, að frv. þetta mundi ekki vera hættulegt í þeim efnum, sem um hafði verið talað. En þetta, sem ég nefndi, taldi ég sem kost á frv. Ég get alveg gengið inn á það, að það sé ekki ástæða til þess að samþ. frv. þetta fyrir það eitt, að það sé ekki hættulegt, ef það gerir engar umbætur frá fyrra ástandi. En ég benti á þessa umbót, sem ég nefndi, alveg sérstaklega. Og auk þess eru það fleiri umbætur, sem í frv. felast. Það kveður skýrar á um það en áður hefur verið í ábúðarl. að hindra menn í að láta jarðir fara í eyði að þarflausu. En aðrir höfðu talað um það, og ég sá ekki ástæðu til þess að taka það fram.