29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2167 í B-deild Alþingistíðinda. (129)
Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.
Einar Olgeirsson:
Ég álít, að hér séu að gerast hlutir í Alþ., sem ekki sé hægt að láta óátalið. — Það er samið milli flokka um mál, sem eigi að ná fram að ganga. Það er ágreiningur um ákvæði í málinu, og þegar málinu er vísað til Ed., þá leyfir meiri hl. d. sér að mæta ekki á þingfundi eftir að breytingin, sem hann var á móti, hafði verið samþ. í Nd. Þarna svíkst meiri hl. d. um að mæta á fundi til þess að hindra, að málið nái fram að ganga, af því að hann veit, að hann er í minni hl. í þinginu. Mér finnst það hart, að litlum minni hl. þingsins skuli þannig leyfast að stöðva mál á síðustu stundu. Ég álít það algerlega óforsvaranlegt að viðhafa slík vinnubrögð. Og ég vildi mælast til þess, að það verði alvarlega athugað, áður en gengið er frá þingslitum, hvort eigi er unnt, að þetta mál, sem samið var um, nál fram að ganga og verði afgr. af þeim meiri hl., sem er fyrir varðandi það í þinginu. En þessi háttur, að reyna að hindra með þessum aðferðum framgang máls, mun ekki hafa tíðkazt hér í þinginu, ekki a. m. k. svo langt sem ég man. Þetta eru ný og óvenjuleg vinnubrögð, sem tekin eru hér upp. Og ég mótmæli þessari aðferð, sem hér er beitt til þess að knýja fram vald minni hl. í máli. Ég krefst þess, að reynt verði að boða til fundar í hv. Ed. á ný, því að hér er um svik að ræða, ef málið verður ekki afgr. Og það er engin ástæða til þess að hlífa mönnum við því að taka afstöðu til þessa máls.