04.12.1945
Neðri deild: 48. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 936 í B-deild Alþingistíðinda. (1316)
55. mál, lestagjald af skipum
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :
Herra forseti. Þetta er stjfrv., og við það er gerð brtt. á þskj. 258, eftir beiðni tollstjóra og skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins. Þessar breyt., sem gerðar eru á lestagjöldunum með þessum hætti, koma eingöngu við innheimtunni, og það er sameiginlegt álit tollstjóra og skrifstofustjórans, að það muni gera ráðuneytinu miklu hægara fyrir um innheimtu þessara gjalda, ef þau eru innheimt á sama tíma og önnur skipagjöld.
Fjhn. leggur til einróma, að frv. og brtt. verði samþ.