09.11.1945
Neðri deild: 29. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 938 í B-deild Alþingistíðinda. (1326)
78. mál, aðstoðarlán til síldarútvegsmanna 1945
Eysteinn Jónsson:
Vegna þess að ég er ekki flm. þessa frv., en á þó sæti í sjútvn., þá vil ég segja fáein orð.
Ég taldi, að betur hefði farið á því að fara aðra leið í þessu máli, en það þýðir ekki, að ég sé því mótfallinn, þetta er mjög svo merkilegt mái. En þannig er nú málum komið, að strax þegar atvinna stöðvast, þrátt fyrir gott verðlag, þarf að grípa til þess að stofna lánasjóð til þess að bjarga afurðunum. Ég álit, að undirbúningur þessa máls hefði átt að vera annar, og ég tel neyðarúrræði að stofna sérstakan lánasjóð út af óhappi í sumar. Þetta er þýðingarmikið fordæmi og allt á fremstu nöf að því er varúð og fyrirhyggju viðkemur. N., sem rannsakaði efnahag manna, hefði átt að athuga betur allar aðstæður og kynna sér afkomu allra þessara manna, hvaða tryggingar þeir hefðu og möguleika til að útvega ábyrgð, er til þyrfti. N. hefði ekki aðeins átt að starfa sem rannsóknaraðili, heldur einnig sem leiðbeinandi. Margir eða flestir — ég þori ekki að segja allir — hefðu getað fleytt þessu áfram án þess að stofna kreppulánasjóð, en þá hefði verið mikið unnið fyrir þingið og útgerðarmennina, því að þá langar ekki í slíka lánsstofnun. Ég fullyrði, að ef þessi aðferð hefði verið höfð og þeir fengið fyrirgreiðslu í bönkum, þá hefði það hjálpað mjög mikið, þótt ekki væri alveg hægt að komast hjá sjóðsstofnun. Ég talaði við nm. og stjórnina um þessa aðferð. Það var að vísu orðið nokkuð seint, en þó mætti enn komast að mestu hjá þessum kreppulánasjóði — ég þori ekki að segja alveg, Ég játa, að þetta áfall hafi verið erfitt fyrir byrjendur, en með fyrirgreiðslu og aðstoð bankanna hefði verið hægt að komast hjá svona lánum.
Mér er ljóst, hversu þýðingarmikið þetta mál er, og vildi ég láta athuga það betur, og ef það kæmi í ljós, að það væri ekki unnt að fara áður nefnda leið, þá er ekki á móti leið þeirri, sem í frv. er lagt til, að farin verði. Ég álít, að enn sé hægt, ef ríkisstj. vildi setja í það röska menn, að rannsaka þetta, hvort ekki væri hægt að fara aðra leið en þá, sem í frv. er gert ráð fyrir, sem væri betri bæði fyrir Alþ. og útgerðarmenn. Gert er ráð fyrir, að menn fái lán, en með minni trygggingum en þeim, sem bankarnir taka gildar, því að annars væri frv. auðvitað tilgangslaust. Nú er þess að gæta, að ef farið verður út á þessa braut, þá vil ég, að sett verði í frv., að þessir menn, sem lán fá, leggi fram allar sínar tryggingar. Það kemur ekki til mála að lána áhættulán nema eigendur fyrirtækjanna komi með allar sínar tryggingar. Ríkið getur ekki gengið í ábyrgð fyrir útgerðarfyrirtæki nema eigendur þess vilji leggja sjálfir fram það, sem þeir hafa til tryggingar. — Ég óska svo eftir, að þetta verði rætt áður en málið fer fram hjá 2. umr. Það er því fullkominn neyðarkostur að verða að grípa til kreppulána eða annarra lána með ríkisábyrgð. Þá koma þar að bæði verðugir og óverðugir, oft prýðismenn, sem lagt hafa dugnað og atorku í ýmiss konar framkvæmdir. Sumpart er þá hlaupið undir bagga með þeim, sem hafa hagað sér skynsamlega, og er það auðvitað gott, en sumpart er einnig hlaupið undir með þeim, sem hafa sóað og hagað sér óskynsamlega, og er það auðvitað miður.
Það er vitanlega ekkert fagnaðarefni að verða að setja kreppulánalöggjöf. Allar slíkar löggjafir letja menn til að sýna varkárni og forsjá. Þessar og þvílíkar ráðstafanir tel ég óheppilegar, og bezt, að þ. gæti komizt hjá því að setja þær. En ef reynslan sýnir, að ekki er hægt að hlaupa undir bagga svo að um muni með öðru móti, þá verða menn að neyðast til að fara inn á þessar sérstöku lánveitingabrautir.
Að lokum vil ég segja þetta: Ég mun ekki beita mér á móti frv., þótt ég hafi bent á, hvaða aðferð ég vildi fara. Ég hef gert grein fyrir, hvers vegna ég var ekki með í flutningi frv. Ég vænti svo, að frv. verði tekið fyrir í sjútvn., og getum við þá athugað nánar einstök ákvæði frv., t. d. tryggingarákvæðin.