13.12.1945
Efri deild: 48. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (1346)
78. mál, aðstoðarlán til síldarútvegsmanna 1945
Frsm. (Steingrímur Aðalsteinsson) :
Herra forseti. Ég skal reyna að vera stuttorður um þetta mál, þar sem fundartími er svo mjög hlaupinn.
Eins og þm. er kunnugt, eru tildrög þessa máls þau, að eftir að síldarvertíðin s. l. sumar hafði brugðizt svo sem raun varð á og ýmsir af síldarútvegsmönnum komust í fjárþröng, var nefnd manna skipuð til þess að rannsaka það mál og komst hún að þeirri niðurstöðu, að nauðsynlegt væri að veita þeim mönnum sérstaka aðstoð, og var þetta frv. flutt í því skyni að veita þá aðstoð. Sjútvn. Nd. hafði þess vegna flutt þetta frv. að beiðni atvmrh., og hefur það verið afgr. frá Nd. með lítilli breyt., sem miðar að því að tryggja enn betur, að þeir aðilar, sem koma til greina, fái þau lán, sem hér um ræðir, og leggi sjálfir fram sem mest af sínu eigin fé í tryggingu. Sjútvn. þessarar d. hefur einnig rætt þetta mál og hefur orðið sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem um getur í áliti n. á þskj. 338. Það kom að vísu fram í n., að í því gæti falizt nokkur fjárhagsleg áhætta fyrir ríkissjóð að veita þessi lán, en eins og ég sagði, var samkomulag um það í n., að nauðsynin væri þó það mikil, að það væri rétt að gera þetta. Lánsupphæðin, sem frv. gerir ráð fyrir, er allt að 4 millj. kr. og það er ætlazt til, að kosin verði af Alþ. 5 manna n., sem hafi með höndum að meta ástæður þeirra, sem um lánin sækja, og ákveða síðan lánsupphæðina til þeirra, og sjútvn. Ed. hefur einnig gert till. um það, að þessi n. verði látin ákveða lánstímann, en í frv. var ákveðið, að hann skyldi vera 5 ár. Við teljum æskilegt, að lánstíminn væri sem allra stytztur, og teljum heppilegt, að n. geti ráðið því og haft lánstímann mismunandi langan eftir ástæðum lántakanda, geti ráðið því, að hann sé stuttur, ef möguleikar eru fyrir viðkomandi aðila að ljúka þessu á skemmri tíma, en hámarkslánstími sé 5 ár. Þessi breyt. felst í 1. brtt. á þskj. 338, þannig að 6. gr., sem fjallar um lánstímann og vexti, er felld niður, en bætt við 4. gr. ákvæði um þetta atriði.
Þá töldum við einnig rétt, að í 7. gr. væri sett, eins og áður var í frv., ákvæði um það, að innheimta megi lánin að meira eða minna leyti eftir að seldar væru þær tryggingar, sem stóðu fyrir láninu, en í 7. gr. er þetta, eins og ég sagði, aðeins látið ná til þess, ef lántakandi selur skip sitt. En við teljum sjálfsagt, þar sem gert er ráð fyrir, að fleiri eignir og annarra tegunda mundu verða veðsettar fyrir þessum lánum, að þá geti ákvæðið einnig um það, ef skyldan að hafa veð fyrir lánunum er ríkarí á þann hátt.
Vegna þess, hvað áliðið er orðið fundartímans, skal ég ekki að svo komnu fara um þetta fleiri orðum. Geri ég ráð fyrir, að þar sem hv. dm. er svo kunnugt um nauðsyn þessa máls, og þar sem n. hefur orðið sammála um afgreiðslu þess, þá muni vonandi heldur ekki verða það mikill ágreiningur hér í d., að þörf sé á að halda um það langar ræður. Ég vil svo aðeins leggja til, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem n. leggur til á þskj. 338.