14.12.1945
Neðri deild: 54. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 946 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)
78. mál, aðstoðarlán til síldarútvegsmanna 1945
Frsm. (Sigurður Kristjánsson):
Ég sé enga ástæðu til þess að frv. fari til n., því að það er efnislega óbreytt. Breyt. Ed. eru frekar til þess að brosa að þeim en taka þær alvarlega, og er þetta sú allra minnsta brjálun, sem orðið hefur á málum, sem hafa farið til þessarar sérgáfuðu n. í Ed., og sé ég ekki ástæðu til þess að ræða þetta frekar.