14.12.1945
Efri deild: 49. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 951 í B-deild Alþingistíðinda. (1388)

93. mál, ullarmat

Frsm. (Haraldur Guðmundsson) :

Frv. þetta er komið frá hv. Nd., og var samþ. óbreytt. Efni frv. er að ákveða, að árslaun ullarmatsmanna verði 1200 kr., en árslaun yfirullarmatsmanna 600 til hvers þeirra auk dýrtíðaruppbótar. Laun þessi eru nú 800 kr. til ullarmatsformanns, en 400 til yfirullarmatsmanna. Er þetta vitanlega í ósamræmi við hin bættu launakjör, sem starfsmenn ríkisins hafa öðlazt á yfirstandandi ári. Samkv. l. nr. 3. 1936 hafa yfirkjötmatsmenn 600 kr. á ári í laun, og verður að teljast eðlilegt, að yfirullarmatsmenn hafi sömu laun. Einnig er lagt til, að ullarmatsformaður hafi tvöfalt hærri laun. — Landbn. hefur athugað frv., og leggur hún til, að það verði samþ. óbreytt.