12.12.1945
Sameinað þing: 17. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2170 í B-deild Alþingistíðinda. (140)

Varamaður tekur þingsæti o. fl.

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Það er óþarfi, að ég standi hér upp, úr því að forseti hefur tekið þetta fram. Hlutaðeigandi þingmaður á að snúa sér til deildarforseta, í þessu tilfelli forseta neðri deildar, og skal hann svo meta þau gögn, sem fyrir liggja. Síðan er það verk kjörbréfanefndar að kveða á um gildi kjörbréfs.