06.11.1945
Neðri deild: 22. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (1427)
66. mál, sveitarstjórnarkosningar
Sigurður Thoroddsen:
Herra forseti. Ég flyt hér á þskj. 86 brtt. í þá átt, sem hv. frsm. gat um, að hann og aðrir nm. gætu fellt sig við. Ég þarf ekki að tala fyrir till., hv. frsm. hefur gert það. Ég sé enga ástæðu til að það sé fellt úr l., að hjón eða menn skyldir að niðjatali megi ekki sitja saman í bæjarstjórn, ef þetta er ekki einnig látið ná til hreppsnefnda. Og ég verð að segja, að ef brtt. mín, sem fer í þá átt að rýmka þetta í l., þannig að mönnum, sem skyldir eru að niðjatali sé heimilt að sitja í hreppsnefnd og bæjarstjórn, ef hún verður ekki samþ, af hv. þd., þá mun ég greiða atkv. á móti frv.