14.11.1945
Neðri deild: 32. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (1436)

66. mál, sveitarstjórnarkosningar

Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Brtt. á þskj. 149, sem nú hefur verið mælt fyrir, var útbýtt nú á þessum fundi, og hefur allshn. því ekki átt þess kost að athuga hana. Vildi ég því beina því til hv. flm. og forseta, hvort ekki væri rétt að málið væri athugað milli umr. af allshn., sem hefur það til athugunar. Ég get sagt það strax af minni hálfu, að mér virðast öll rök mæla með þessari brtt. Ég vil þó skjóta því til hæstv. forseta, að málinu verði frestað til morguns, svo að allshn. gæti átt þess kost að athuga brtt. áður en málið kæmi til endanlegrar atkvgr. hér í hv. deild.